Forsetinn og sameiningin
EyjanNú eru komin fram nokkur framboð til forsetakosninga og kannski hægt að fara að ræða af viti um tilgang þessa embættis. Hann er nefnilega mjög óljós, því fer fjarri að um hann sé einhver samstaða. Í einni grein las ég að eitt forsetaefnið myndi ná að „sameina“ þjóðina. Jú, kannski er möguleiki að nýr forseti Lesa meira
Bólgin orðræða
EyjanStundum kvartar maður undan bólginni umræðuhefð á Íslandi. Oft er tilefni til – umræðan í þinginu er til dæmis þannig að þjóðin vill ekki lengur hlusta á hana. Stundum fer þetta líka út fyrir öll mörk. Til dæmis í breska tímaritinu Prospect. Þetta er blað sem dáði Tony Blair og þriðju leiðina umfram allt á Lesa meira
Þekktar markalínur
EyjanÞað er sérstætt hvaða farveg Evrópuumræðan getur farið hér á Íslandi. Nú steyta menn stömpum yfir því að sendiherra ESB á Íslandi hafi haldið nokkra kynningarfundi. Það er látið eins og þetta hljóti að varða við lög og alþjóðasamninga. Þetta eru opnir fundir – þar sem fólk getur mætt og borið fram spurningar. Líka þeir Lesa meira
Stenst Rammaáætlun þá ekki?
EyjanHörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kastar sprengju inn í umræðuna um orkunýtingu á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Samkvæmt Rammaáætlun sem nú er búið að berja saman, eftir langt nefndarstarf og síðan þóf milli stjórnarflokkanna, er eiginlega ekki gert ráð fyrir neinum vatnsaflsvirkjunum. Í staðinn er gert ráð fyrir því að 95 prósent af orkunni í nýtingarflokki Lesa meira
Helgi Seljan: Samsærissplæs sem ekki heldur
EyjanHelgi Seljan svarar Páli Guðmundssyni, útgerðarmanni í Eyjum, sem hafði uppi stór orð vegna umfjöllunar Kastljóss um verðmyndun sjávarafurða. Grein Helga birtist í Eyjafréttum, en upphaf hennar er svona: „Þú skrifaðir fyrir helgina langan og sundurlausan reiðilestur vegna umfjöllunar Kastljóss um verðmyndun sjávarafurða. Satt best að segja er ekki hlaupið að því að átta sig Lesa meira
Vantar talsmenn
EyjanLoks koma samtök Evrópusinna með útspil sem getur haft áhrif á afstöðu þjóðarinnar til ESB. Verðlag æðir áfram á Íslandi, en í Evrópu er stöðugleiki í þessum efnum. En vandi Evrópusinna er ekki síst sá að þá vantar talsmenn sem geta mælt fyrir málstað þeirra. Ríkisstjórnin er klofin í málinu og gerir það ekki. Forsætisráðherrann Lesa meira
Hættuspil
EyjanEftir því sem olíulindir minnka, en eftirspurn eftir vökvanum dregst ekki saman, fara menn að teygja sig lengra eftir olíunni. Fyrir skemmstu sá ég mynd um hryllilega vinnslu olíu úr sandi sem fer fram í Alberta í Kanada. Stór svæði hafa orðið mengun að bráð vegna þessa – tíðni krabbameins er óvenju mikil vegna þessa. Lesa meira
Einar: Borgin með klám á heilanum?
EyjanEinar Steingrímsson stærðfræðingur vekur athygli á bæklingi, útgefnum af Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur, á bloggsíðu sinni hér á Eyjunni. Bæklingurinn fjallar um klámvæðingu og kynferðislega áreitni á vinnustöðum, það mætti ætla að þetta sé mikið vandamál, en eins og Einar segir sýnir bæklingurinn ekki fram á það – því fer eiginlega fjarri. Þarna er talað um vinnustaði Lesa meira
Tvær kannanir
EyjanTvær skoðanakannanir vekja athygli um þessi mánaðarmót. Ríkisstjórnin fær hrós í erlendum blöðum fyrir endurreisn íslensks efnahagskerfis, það er sagt að heimurinn fylgist með því hvernig þjóð skiptir úr bóluhagkerfi yfir í raunhagkerfi þar sem fiskur og ferðamennska eru í fyrirrúmi. En á sama tíma birtist könnun þar sem kemur í ljós að ríkisstjórn á Lesa meira
Ekki færiband
EyjanMaður hefði haldið að kirkjan ætti að fagna breytingu sem felur í sér að sjálfvirk skráning barns í trúfélag móður er afnumin. En Karl Sigurbjörnsson biskup segir að þetta sé íþyngjandi fyrir kirkjuna og börnin. Hugsanlega fækkar þetta eitthvað meðlimum í þjóðkirkjunni en á móti kemur að foreldrar munu þurfa að íhuga hvort rétt sé Lesa meira