„Ég veit hver myrti Emilie Meng“
PressanSumarið 2019 sagði 44 ára karlmaður við lögregluna að hann vissi hver hafi myrt Emilie Meng sem var 17 ára þegar hún var myrt árið 2016. Morðið á henni er meðal dularfyllstu morðmála síðari tíma í Danmörku. Maðurinn situr sjálfur í fangelsi en hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir tvo morð á Sjálandi. Þetta Lesa meira
Eiginmaður hlaupastjörnunnar grunaður um að hafa myrt hana
PressanÍ gær fannst keníska hlaupastjarnan Agnes Tirop látin á heimili sínu í Kenía. Hún var með stungusár á maga og í hnakkanum. Lögreglan telur að eiginmaður hennar hafi orðið henni að bana. Tirop hafði tvisvar unnið til bronsverðlauna á HM í frjálsum íþróttum. BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að lík hennar hafi fundist á heimili hennar í Iten í gær en Lesa meira
Þetta er árásarmaðurinn í Kongsberg – Telja að um hryðjuverk hafi verið að ræða
PressanLeyniþjónusta norsku lögreglunnar, PST, telur að ódæðisverkin í Kongsberg í gær hafi verið hryðjuverk. Norskir fjölmiðlar hafa birt mynd af ódæðismanninum sem og nafn hans. Hann heitir Espen Andersen Bråthen og er 37 ára danskur ríkisborgari búsettur í Kongsberg. Hann varð fjórum konum og einu karli að bana í gærkvöldi. Í fréttatilkynningu frá PST kemur fram að eins og staðan sé núna Lesa meira
Spurningin sem íbúar í Kongsberg spyrja sig – „Það er hræðilegt að hugsa til þess“
PressanEins og gefur að skilja eru íbúar í Kongsberg í Noregi í miklu áfalli eftir atburði gærkvöldsins þar sem 37 ára danskur ríkisborgari myrti að minnsta kosti fimm manns og særði tvo með boga og örvum. Þetta gerðist í miðbænum. Eitt er það sem leitar sérstaklega mikið á huga fólks í kjölfar voðaverksins og munu margir vilja Lesa meira
Hryllingsmínúturnar 34 í Kongsberg – Sá grunaði sagður hafa snúist til Íslamstrúar
PressanÍ 34 mínútur gekk 37 ára danskur ríkisborgari um í Kongsberg í Noregi og skaut á fólk með boga og örvum. Hann er einnig sagður hafa verið með hníf. Honum tókst að flýja undan lögreglunni eftir að hafa skotið örvum að lögreglumönnum. Að minnsta kosti fimm létust og tveir særðust. Lögreglan rannsakar hvort um hryðjuverk Lesa meira
Fimm látnir í Kongsberg – 37 ára Dani í haldi lögreglunnar
PressanNorska lögreglan hefur staðfest að fimm voru drepnir í Kongsberg í gærkvöldi og að 37 ára danskur ríkisborgari sé í haldi lögreglunnar vegna málsins. Að minnsta kosti tveir særðust en ekki alvarlega. Hinn handtekni er nú vistaður í fangaklefa á lögreglustöðinni í Drammen. Lögreglan sendir frá sér fréttatilkynningu með upplýsingum um hinn handtekna þar sem hún Lesa meira
Einn skotinn til bana í Stokkhólmi og 15 ára piltur særður
PressanKarlmaður á fimmtugsaldri var skotinn til bana í Farsta í suðurhluta Stokkhólms í gærkvöldi. 15 ára piltur liggur alvarlega særður á sjúkrahúsi en hann var með hinum látna þegar skotið var á þá. Expressen skýrir frá þessu. Blaðið hefur eftir talsmanni lögreglunnar að tilkynnt hafi verið um skothríð um klukkan 22. Á vettvangi hafi tveir slasaðir menn fundist Lesa meira
Skotinn til bana á fyrstu vakt sinni
PressanAðfaranótt laugardagsins var lögreglumaðurinn Dylan Harrison skotinn til bana utan við lögreglustöð í Alamo í Georgíu. Hann var á sinni fyrstu vakt hjá lögreglunni í Wheeler County. CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að Harrison hafi verið skotinn til bana um klukkan 01 aðfaranótt laugardags utan við lögreglustöð í Alamo í Wheeler County í Georgíu. Hann var 26 ára. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Lögreglan hefur heitið peningaverðlaunum fyrir upplýsingar sem Lesa meira
Hrottalegt morð á Alexanderplatz í miðborg Berlínar
PressanLögreglan í Berlín hefur handtekið einn vegna hrottalegs morðs á föstudaginn við Fernsehturm á Alexanderplatz í miðborginni. Það var vegfarandi sem fann lík við Fernsehturm (sjónvarpsturninn) snemma á föstudaginn en turninn er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar. Staðarblaðið BZ segir að hinn handtekni sé flóttamaður frá Pakistan. Ekki er enn vitað með vissu hver fórnarlambið er en talið er að um flóttamann Lesa meira
Morðið á Gabby Petito – Foreldrar unnusta hennar breyta framburði sínum varðandi mikilvægt atriði
PressanBandaríska lögreglan leitar enn logandi ljósi að Brian Laundrie sem er grunaður um að hafa myrt unnustu sína, Gabby Petito í lok ágúst. Parið var á ferðalagi um Bandaríkin en Brian sneri einn aftur heim til Flórída úr ferðalaginu. Hann vildi ekki skýra frá hvar Gabby væri eða hvað hefði orðið um hana og hann vildi ekki ræða við lögregluna. Lík Gabby fannst þann 19. september í Wyoming. Lesa meira
