fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Lítt þekkt ættartengsl

Lítt þekkt ættartengsl: Sjaldan fer leiklistarbakterían langt

Lítt þekkt ættartengsl: Sjaldan fer leiklistarbakterían langt

Fókus
23.11.2018

Hjalti Rúnar Jónsson leikur Clifford Bradshaw í söngleiknum Kabarett, sem sýndur er hjá Menningarfélagi Akureyrar. Hjalti Rúnar lék aðalhlutverkið í Ikíngut og var tilnefndur til Eddunnar fyrir það hlutverk. Hann hefur þó aðallega starfað í leikhúsunum. Hjalti Rúnar á ekki langt að sækja áhugann á leiklistinni og leikhúsunum, en móðir hans er María Sigurðardóttir, leikkona, Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Verkalýðsforinginn og ráðherrann

Lítt þekkt ættartengsl: Verkalýðsforinginn og ráðherrann

Fókus
05.11.2018

Á dögunum var Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, kjörin forseti ASÍ. Hún er fyrst kvenna til að gegna því starfi. Drífa er vinstri sinnuð baráttukona með ríka sómakennd. Til marks um það sagði hún sig úr Vinstri grænum þegar flokkurinn gekk til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn. Drífa á ekki langt að sækja blóðrauðan baráttuandann. Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Neytendaforinginn og alþingismaðurinn

Lítt þekkt ættartengsl: Neytendaforinginn og alþingismaðurinn

Fókus
04.11.2018

Í vikunni var Breki Karlsson kjörinn nýr formaður Neytendasamtakanna. Fjórir voru í framboði en Breki hlaut 53% greiddra atkvæða. Breki státar af meistaraprófi í hagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og hefur um árabil starfað sem forstöðumaður Samtaka um fjármálalæsi. Áhugann á fjármálum á Breki sameiginlegan með móðurbróður sínum, alþingismanninum Pétri H. Blöndal heitnum.

Lítt þekkt ættartengsl: Femínistinn og fjölmiðlakonan

Lítt þekkt ættartengsl: Femínistinn og fjölmiðlakonan

Fókus
27.10.2018

Undanfarnar vikur hefur hálfgert kynjastríð geisað á netmiðlum þar sem Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og femínisti, fer fremst í flokki. Ljóst er að fáir hafa jafnmikla hæfileika og Hildur til þess að ýfa stélfjaðrirnar hjá sperrtum karlfuglum. Hildur er ekki ein um að vera umdeild í fjölskyldu sinni. Faðir Hildar heitir Viggó Bragason Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Listmálarinn og grínistarnir

Lítt þekkt ættartengsl: Listmálarinn og grínistarnir

Fókus
12.10.2018

Um síðustu helgi opnaði listamálarinn Þrándur Þórarinsson málverkasýningu í Hannesarholti í tilefni af fertugsafmæli sínu. Sýningin mun standa til 1.nóvember næstkomandi en mikla athygli vakti þegar Þrándi var meinað af staðahaldara að sýna málverk sitt Skollbuxna-Bjarna. Þar má sjá Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, klæða sig í nábrók og flegið fórnarlamb liggur á borði í bakgrunni. Föðurafi Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Forstjórinn og lögfræðingurinn

Lítt þekkt ættartengsl: Forstjórinn og lögfræðingurinn

Fókus
30.09.2018

Farsinn innan Orkuveitu Reykjavíkur er flestum kunnur. Ekki eru öll kurl komin til grafar en á meðan rannsókn stendur yfir tók Helga Jónsdóttir við starfinu tímabundið. Ráðgert er að Helga, sem er fyrrverandi stjórnarformaður hjá eftirlitsstofnun EFTA og bæjarstjóri í Fjarðabyggð, muni sinna starfinu í tvo mánuði. Bróðir Helgu er hinn þekkti hæstaréttarlögmaður Gestur Jónsson Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Ráðherrann og forstjórinn

Lítt þekkt ættartengsl: Ráðherrann og forstjórinn

07.07.2018

Ljósmæðradeilan er eitt þeirra mála sem hafa verið í brennidepli undanfarna mánuði og um síðustu helgi hættu á annan tug ljósmæðra störfum og fleiri uppsagnir taka gildi í október næstkomandi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Páll Matthíasson forstjóri LSH eru meðal þeirra sem sætt hafa mikilli gagnrýni vegna málsins.    Það vita það kannski ekki allir Lesa meira

Lítt þekkt ættartengsl: Glæpasagnadrottningin og reðursafnskonungurinn

Lítt þekkt ættartengsl: Glæpasagnadrottningin og reðursafnskonungurinn

01.07.2018

Rithöfundurinn og leikskáldið Lilja Sigurðardóttir hlaut nýlega Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir Búrið, lokabókina í þríleik hennar um Sonju, einstæða móður sem stundar eiturlyfjasmygl, en bækurnar hafa fengið góðar viðtökur hér heima og vakið áhuga erlendra útgefenda og komið út erlendis. Sú fyrsta, Gildran, er tilnefnd til Gullna rýtingsins í flokki þýddra bóka (CWA International Dagger). Gullrýtingurinn Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af

Stöð 2 lækkar verð