Fjármálaráðuneytinu skipað að afhenda óritskoðaða reikninga vegna umdeildra viðskipta við lögmannsstofu
EyjanÚrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjármála- og efnahagsráðuneytinu beri að afhenda fyrirtækinu Frigus II ehf. reikninga yfir viðskipti ráðuneytisins við lögmannsstofuna Íslög ehf. frá janúar 2018 fram til janúar 2023 með mun minni útstrikunum en áður hafði verið gert. Viðskipti ráðuneytisins við Íslög hafa verið umfangsmikil undanfarin ár og vakið talsverðar Lesa meira
Svarthöfði skrifar: Lindarhvoll er svarið
EyjanFastir pennarSvarthöfði rak augun í það í vikunni að Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur, ásamt nokkrum félögunum sínum í þingflokki sjálfstæðismanna, lagt fram þingsályktunartillögu um að skipuð verði nefnd „sem móti langtímaáætlun um sölu ríkiseigna, lækkun á skuldum ríkissjóðs og fjárfestingu í innviðum. Nefndin verði skipuð þremur sérfræðingum á sviði hagfræði, fjármála og lögfræði. Nefndin Lesa meira
Forseti Alþingis birtir loks greinargerðina um Lindarhvol sem hann hefur hingað til haldið fram að ólöglegt sé að birta
EyjanGreinargerð Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda í málefnum Lindarhvols, var birt á vef Alþingis í gær. Í tilkynningu sem birt var á vefnum segir að þar sem greinargerðin hafi nú birst opinberlega séu brostin skilyrði þess að forsætisnefnd hafi málið til frekari umfjöllunar. Þessi tilkynning er athyglisverð í marga staði. Forsætisnefnd Alþingis hefur ítrekað samþykkt Lesa meira
Lindarhvoll skilar ársreikningi fimm mánuðum of seint – fjárframlög ríkissjóðs virðast byggja á samningi sem fallinn er úr gildi fyrir fimm árum
EyjanLindarhvoll ehf., eignarhaldsfélagið sem fjármálaráðherra stofnaði til að sjá um úrvinnslu og ráðstöfun eigna upp á hundruð milljarða sem slitabú föllnu bankanna afhentu ríkinu sem stöðugleikaframlag árið 2016, skilaði loks ársreikningi sínum þann 30. ágúst, tveimur dögum áður en sjálfkrafa hefði verið lögð 600 þúsund króna sekt á félagið fyrir vanrækslu í þessum efnum. Lindarhvoll Lesa meira
Lindarhvolsmálið á mannamáli: Möguleg umboðssvik kunna að hafa kostað ríkið 0,5-1,9 milljarða
EyjanLindarhvolsmálið, sem nú er á borði héraðssaksóknara og þar með komið í hefðbundið ferli sakamála, er umfangsmikið og nokkuð flókið. Í málinu liggur hins vegar ljóst fyrir að Sigurður Þórðarson, fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi í málefnum Lindarhvols ehf., gerði alvarlegar athugasemdir við starfsemi félagsins í greinargerð sinni sem fjármálaráðherra, ríkisendurskoðandi og forseti Alþingis héldu leyndri fyrir stjórnskipunar- Lesa meira
Ríkisendurskoðandi kastar fram röngum og villandi staðhæfingum um Sigurð Þórðarson og Lindarhvol í útvarpsviðtali
EyjanGuðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, var í löngu og mjög sérkennilegu viðtali á Sprengisandi í gær, sunnudaginn 23. júlí. Þar setti hann fram hverja staðhæfinguna á fætur annarri um Lindarhvolsmálið, skýrslu Ríkisendurskoðunar og greinargerð Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um málefni Lindarhvols, sem flestar ef ekki allar virðast vera gersamlega galnar, komandi frá háttsettum embættismanni. Guðmundur Lesa meira
Lindarhvolsmálið komið í eðlilegan farveg sakamáls
EyjanRíkissaksóknari hefur sent bréf Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda í málefnum Lindarhvols, ásamt fylgigögnum, sem meðal annars innihalda greinargerð Sigurðar um starfsemi Lindarhvols sem fjármálaráðherra, forseti Alþingis, Seðlabankinn og ríkisendurskoðandi hafa lagt allt kapp á að halda leyndri, til héraðssaksóknara til efnislegrar meðferðar. Af þessu er ljóst að ríkissaksóknari hefur lagt sjálfstætt mat á að ábendingar Sigurðar Lesa meira
Þorvaldur vill að hæstaréttardómari sem sagði ekki „múkk“ víki vegna Lindarhvolsmálsins
EyjanÞorvaldur Gylfason, prófessor emerítus í hagfræði við Háskóla Íslands, gerir málefni Lindarhvols að umtalsefni í færslu á Facebook-síðu sinni nú í morgunsárið. Eins og kunnugt er var umtöluð skýrsla Sigurðar Þórðarsonar, setts ríkisendurskoðanda, um málefni félagsins birt í gær. Skýrslunni hafði verið haldið leyndri síðan árið 2018. Í henni er farið yfir rekstur félagsins sem Lesa meira
Hér er greinargerðin um Lindarhvolsmálið sem forseti Alþingis vildi ekki að væri opinberuð
EyjanFyrir fimm árum síðan, í júlí 2018, skilaði Sigurður Þórðarson, settur ríkisendurskoðand í málefnum Lindarhvols, inn greinargerð um starfsemi félagsins. Greinargerðinni var stungið ofan í skúffu og þar hefur hún legið síðan þrátt fyrir lögfræðiálit liggi fyrir um að skylt væri að birta skjalið. Sá sem hefur staðið í vegi fyrir því er Birgir Ármansson, Lesa meira
Lindarhvolsmálinu vísað til ríkissaksóknara
EyjanSigurður Þórðarson, fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi í málefnum Lindarhvols, hefur vísað Lindarhvolsmálinu til ríkissaksóknara til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu. Þetta kemur fram í bréfi Sigurðar til þeirra sem málið varðar, dags. 28. júní 2023. Fylgiskjöl með bréfinu eru: Greinargerð setts ríkisendurskoðanda vegna Lindarhvols ehf. júlí 2018 Bréf til forsætisnefndar Alþingis, dags. 17. febrúar 2021 Bréf til Lesa meira