Magnús sorgmæddur yfir lokun Roðasala: „Þarna vildum við að Ellý fengi að búa“
FréttirMagnús Karl Magnússon, læknir og eiginmaður Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, segist vera miður sín yfir fréttum þess efnis að til standi að loka Roðasölum í Kópavogi. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum í vikunni að endurnýja ekki samning við Sjúkratryggingar Íslands vegna reksturs Roðasala, en samningurinn rennur út í lok mars á næsta ári. Kópavogsbær hefur rekið Lesa meira
Þórdís Kolbrún hefur þegið 13,8 milljónir í húsnæðis- og dvalarstyrk – óljóst með kostnað á móti
EyjanÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sækist eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningu, Helstu rökin sem hún hefur nefnt fyrir því að hún hyggst nú flytja sig úr sínu gamla kjördæmi, Norðvestur, eru að hún hafi búið í Kópavogi í tíu ár, fjölskyldan sé búin að koma sér vel fyrir þar og Lesa meira
Vilhjálmur Birgisson: Ásdís brýtur samkomulag vegna kjarasamninga með skattahækkunum – á sér engar málsbætur
Eyjan„Nei, Ásdís þú átt þér engar málsbætur yfir þessar duldu skattahækkun á bæjarbúa í Kópavogi og mikilvægt að öll þjóðin og fjölmiðlar átti sig á hvað þið eruð að gera og ég trúi ekki að hinn almenni Sjálfstæðismaður styðji þessa skattahækkun á barnafólk í Kópavogi. Enda er hér um splunkunýja aðferð að ræða sem mér Lesa meira
Vilhjálmur Birgisson: Sjálfstæðismenn í Kópavogi kynda undir verðbólgunni svo annað eins hefur ekki sést – nýtt skattaform
EyjanUndir forystu Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi samþykkti bæjarráð í júlí 2023 að vísitölutengja gjaldskrár bæjarins og uppfæra þær í flestu tilvikum fjórum sinnum á ári. Athygli vekur að almenna reglan er að notuð sé launavísitala en ekki vísitala neysluverðs, sem jafnan er notuð til vísitölutengingar. Sá er munurinn á þessum vísitölum að launavísitala hækkar að jafnaði Lesa meira
Bygging Kársnesskóla í Kópavogi komin hundruð milljóna fram yfir áætlanir – Mikill hönnunar og eftirlitskostnaður
FréttirBygging Kársnesskóla í Kópavogi hefur farið hundruð milljóna króna fram úr kostnaðaráætlunum. Enn þá er ekki vitað hver heildarkostnaðurinn verður. Þetta kemur fram í svörum bæjarins við fyrirspurnum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, bæjarfulltrúa Viðreisnar. Theodóra spurði meðal annars um kostnað við eftirlit við byggingu skólans. Kostnaðarmatið var 100 milljónir króna og samið var við JT verk um það Lesa meira
Nágrannaerjur í Kópavogi – Sætti sig ekki við að veggur væri brotinn niður og lögnum breytt
FréttirÚrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur kveðið upp úrskurð í máli þar sem eigandi hluta fjöleignarhúss í Kópavogi fór fram á tímabundna stöðvun framkvæmda sem eigandi annars hluta eignarinnar stóð fyrir en þær fólust meðal annars í því að rífa niður vegg og breyta neysluvatns- og hitalögnum. Vildi kærandinn í málinu að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar á Lesa meira
Strætó biður eigendur sína aftur um meiri pening
FréttirStrætó b.s. hefur óskað eftir sérstöku fjárframlagi frá eigendum félagsins, sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Nemur heildarupphæðin 188 milljónum króna. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem að Strætó óskar eftir auka fjárframlagi frá sveitarfélögunum. Í lok síðasta árs óskaði Strætó eftir því að sveitarfélögin leggðu því til tæplega 352 milljónir króna til að Lesa meira
Foreldrum í Kópavogi brugðið vegna manns sem kennir börnum ofbeldi úti á götu – „Þetta er mjög skringileg hegðun“
FréttirForeldrum í Kópavogi er brugðið vegna fullorðins manns sem hefur sést kenna börnum, sumum mjög ungum glímubrögð og skylmingar nálægt Hamraborg. Lögreglan hyggst hafa uppi á manninum. „Þetta er eitthvað sem við verðum að skoða og hafa uppi á þessum manni og ræða við hann. Þetta er mjög skringileg hegðun,“ segir Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri á Lesa meira
Erfitt mál fyrir Kópavogsbæ – „Húsið hefur verið hlutað niður í að lágmarki þrjár íbúðir“
FréttirKópavogsbær er í vanda vegna húsnæðis á Kársnesi sem gerðar hafa verið breytingar á án leyfis bæjarins. Húsið er skráð sem einbýlishús en 14 manns eru nú skráð með lögheimili þar og nágrannar eru mjög ósáttir. Eigandi hússins vann mál gegn bænum fyrir úrskurðarnefnd um að fá að stækka húsið en bærinn frestar samt sífellt afgreiðslu málsins. Lesa meira
Saka meirihlutann í Kópavogi um brot á skuldbindingum – Úthluti aðeins lóðum til efnameira fólks
EyjanFulltrúar minnihlutans í Kópavogi saka meirihlutann um að fara gegn skuldbindingum og húsnæðisáætlun við úthlutun á lóðum í Vatnsendahvarfi. Ekkert sé hugað að ungu fólki, tekjulágum, námsmönnum og fleiri hópum. Eingöngu verði reist par-, rað- og einbýlishús. „Með samþykkt þessara úthlutunarskilmála eru virtar að vettugi skuldbindingar bæjarfélagsins lögum samkvæmt sem og í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar, aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi Lesa meira
