fbpx
Mánudagur 11.maí 2026

Innlent

Vífilsstaðir seldir – Páll ósáttur

Vífilsstaðir seldir – Páll ósáttur

Eyjan
20.04.2017

Garðabær hefur eignast jörðina Vífilsstaði, skrifuðu Bene­dikt Jó­hann­es­son fjár­málaráðherra og Gunn­ar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóri Garðabæj­ar undir samning þess efnis í gær í golfskála GKG. Um er að ræða 202,4 hekt­ara land í kring­um Víf­ilsstaðasp­ítala, nú­ver­andi golf­vall­ar­svæði GKG, friðland í Víf­ilsstaðahrauni, Rjúpna­hæð á móts við Kjóa­velli sem og svæði aust­an Víf­ilsstaða. Húseignir ríkisins eru undanskildar samningnum, en Lesa meira

Ingibjörg Sólrún: „Landið er klofið“

Ingibjörg Sólrún: „Landið er klofið“

Eyjan
19.04.2017

„Þetta hefur verið mjög lærdómsríkur tími, mjög áhugavert að fylgjast með þróun mála. Þetta hafa verið róstursamir tímar, það hefur mikið breyst síðan ég kom þangað í janúar 2014. Búin að upplifa einar sveitarstjórnarkosningar, einar forsetakosningar, tvennar þingkosningar og nú þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo hafa verið hryðjuverkaárásir og tilraun til valdaráns. Ég hef séð andrúmsloftið breytast í Lesa meira

Umhverfisráðherra gekk til kosninga með þá stefnu að loka stóriðjufyrirtækjum

Umhverfisráðherra gekk til kosninga með þá stefnu að loka stóriðjufyrirtækjum

Eyjan
19.04.2017

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra sagði í kosningabaráttunni í aðdraganda Alþingiskosninga í lok október á síðasta ári að hún og hennar flokkur hefði þá stefnu að loka mengandi stóriðjuverum. Stefna Bjartrar framtíð væri að starfsemi álvera á Íslandi ætti að hætta þegar núgildandi orkusölusamningar við þau rynnu út. Þessi ummæli rifjast nú upp í tengslum Lesa meira

Sigmundur Davíð: Það er ekki hægt að breyta eðli Reykjavíkurborgar

Sigmundur Davíð: Það er ekki hægt að breyta eðli Reykjavíkurborgar

Eyjan
19.04.2017

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins segir yfirvöld í Reykjavík standa í vegi fyrir auknu framboði á húsnæði með öfgakenndri innleiðingu stefnunnar um þéttingu byggðar. Í grein Sigmundar Davíð, sem ber heitið Lausn húsnæðisvandans og er í tveimur hlutum, segir Sigmundur að margt sé til í kenningum um hagkvæmni þéttrar byggðar. Til dæmis geti íbúi í Lesa meira

United Silicon átti að loka fyrir páska – Umhverfisráðherra: Nú er nóg komið

United Silicon átti að loka fyrir páska – Umhverfisráðherra: Nú er nóg komið

Eyjan
19.04.2017

Umhverfisstofnun tilkynnti United Silicon að stöðva þyrfti starfsemi verksmiðju fyrirtækisins í Helguvík fyrir páska þar sem möguleiki væri á því að hættuleg efni á borð við maurasýru og ediksýru menguðu andrúmsloftið í kringum verksmiðjuna. Hætt var við að stöðva starfsemina í kjölfar fundar með forsvarsmönnum fyrirtækisins. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag. Var Lesa meira

Kristinn: Vanhæfur umhverfisráðherra

Kristinn: Vanhæfur umhverfisráðherra

Eyjan
18.04.2017

Kristinn H. Gunnarsson skrifar: Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra gerir í dag opinberlega kröfu til þess að kísilmálmverksmiðjunni í Helguvík verði lokað. Tilefnið er að síðastliðna nótt eldur kom upp í ofnhúsi verksmiðjunnar vill ráðherrann að lokunin standi meðan eftirfarandi verði skoðað: Hver er ástæða einkenna sem íbúar nálægt verksmiðjunni upplifi og mengunarmælingar skýra ekki. Vinnuaðstæður starfsmanna Lesa meira

Formaður Alþýðufylkingarinnar ætlar ekki að mæta á stofnfund Sósíalistaflokksins

Formaður Alþýðufylkingarinnar ætlar ekki að mæta á stofnfund Sósíalistaflokksins

Eyjan
18.04.2017

Þorvaldur Þorvaldsson formaður Alþýðufylkingarinnar ætlar ekki að mæta á stofnfund Sósíalistaflokks Íslands 1.maí næstkomandi. Alþýðufylkingin er róttækur vinstriflokkur sem hefur verið starfandi frá árinu 2013 og bauð flokkurinn fram til þings 2013 og 2016 sem og til borgarstjórnar í Reykjavík 2014. Málflutningur flokksins er að mörgu líkur málflutningi sósíalista, að auka vægi hins félagslega í Lesa meira

Nýir hluthafar koma að Pressunni – Dreift eignarhald að baki tæplega þrjátíu fjölmiðlum

Nýir hluthafar koma að Pressunni – Dreift eignarhald að baki tæplega þrjátíu fjölmiðlum

Eyjan
18.04.2017

Útgáfufélagið Pressan er að ljúka hlutafjáraukningu fyrirtækisins þar sem breiður hópur fjárfesta kemur að rekstri samstæðunnar. Hlutafé í Pressunni, móðurfélagi Vefpressunnar, DV og Birtíngs, verður aukið um 300 milljónir króna og formlega verður gengið frá skráningu hlutafjár á næstu dögum. Innan samstæðunnar eru margir af þekktustu fjölmiðlum landsins og nýverið samþykkti Samkeppniseftirlitið yfirtöku á tímaritaútgáfunni Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af