fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Gunnar Smári Egilsson

Lýsir hvernig hægt er að vigta framhjá og múta íslenskum stjórnmálamönnum -„Til dæmis Samherji og Brim“

Lýsir hvernig hægt er að vigta framhjá og múta íslenskum stjórnmálamönnum -„Til dæmis Samherji og Brim“

Eyjan
14.11.2019

Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður og stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, hefur farið mikinn um Samherjamálið eftir umfjöllun Kveiks og Stundarinnar. Hann birti í gær ítarlega úttekt á því hvernig hann telur að kvótagreifar og stórútgerðir borgi stjórnmálafólki mútur hér á landi. Greinin er sögð byggð á viðtölum við fólk með innsýn í „skuggaveröld stórútgerðarinnar“ : „Þau sem Lesa meira

Nafngreinir útgerðarmanninn sem sveik undan skatti – „Fyrrum sveitarstjórnarmaður Sjálfstæðisflokksins“

Nafngreinir útgerðarmanninn sem sveik undan skatti – „Fyrrum sveitarstjórnarmaður Sjálfstæðisflokksins“

Eyjan
11.11.2019

Útgerðarmaður var dæmdur á dögunum í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi og greiðslu sektar upp á rúmar 36 milljónir króna í Héraðsdómi Vesturlands, vegna meiriháttar skattalagabrots og peningaþvættis. Var honum gert að sök að hafa ekki gefið upp noktun á erlendu kreditkorti sem skattaskjólsfélag í eigu Sigurðar Gísla Björnssonar greiddi fyrir, samkvæmt frétt RÚV. Taldi hann Lesa meira

Segir Björn fá borgað fyrir að sverta andstæðinga Flokksins – „Björn Bjarnason er eiturtunga og slefberi“

Segir Björn fá borgað fyrir að sverta andstæðinga Flokksins – „Björn Bjarnason er eiturtunga og slefberi“

Eyjan
06.11.2019

Hitamál vikunnar er bersýnilega brottvísun hinnar barnshafandi albönsku konu sem neitað var um hæli hér á landi. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segist í pistli fylgjandi brottvísun konunnar og telur að samtökin No Borders, sem vöktu fyrst athygli á málstað konunnar, stuðli að sundrungu í samfélaginu. Fái greitt fyrir að sverta andstæðinga Sjálfstæðisflokksins Þessu unir Gunnar Lesa meira

Hagnaður hjá Sósíalistum – Fengu styrki frá þekktum mönnum úr viðskiptalífinu

Hagnaður hjá Sósíalistum – Fengu styrki frá þekktum mönnum úr viðskiptalífinu

Eyjan
05.11.2019

Alls var 2.6 milljóna króna hagnaður á rekstri Sósíalistaflokks Íslands á síðasta ári samkvæmt útdrætti ársreiknings flokksins sem birtur er á veg Ríkisendurskoðunar. Tekjur flokksins námu 6.2 milljónum og útgjöldin voru 3.6 milljónir. Félagsgjöld og framlög lögaðila og einstaklinga stóðu að mestu undir tekjulið flokksins, en þar munar mest um þá Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar Lesa meira

Sláandi tölfræði frá Alþingi – „Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins væri réttnefni“

Sláandi tölfræði frá Alþingi – „Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins væri réttnefni“

Eyjan
01.11.2019

Kjörtímabil ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er nú hálfnað. Á þessum tíma í fyrra hafði ríkisstjórnin lagt fram alls 31 stjórnarfrumvarp fyrir Alþingi. Í ár eru þau einungis 20 það sem af er. Það er þriðjungsfækkun. Við bætist að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa aðeins mælt fyrir þriðjungi þeirra mála sem ættu að vera komin fram, ef Lesa meira

Gunnar Smári neitar aðild að stofnun nýs Alþýðublaðs – „En ég veit að þessi hugmynd nýtur fylgis“

Gunnar Smári neitar aðild að stofnun nýs Alþýðublaðs – „En ég veit að þessi hugmynd nýtur fylgis“

Eyjan
29.10.2019

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi og blaðamaður sagði við Eyjuna í dag að ekki stæði til að hann kæmi að fjölmiðlarekstri sem fjármagnaður yrði af verkalýðshreyfingunni. Gunnar minntist þess í færslu á Facebook að þennan dag hafi Alþýðublaðið verið stofnað fyrir 100 árum og staðan þá væri keimlík stöðunni í dag og því full ástæða til Lesa meira

Segir Brynjar Níelsson það næsta sem kemst verkalýðsforkólfi á þingi – „Eins hlægilegt og það nú er“

Segir Brynjar Níelsson það næsta sem kemst verkalýðsforkólfi á þingi – „Eins hlægilegt og það nú er“

Eyjan
29.10.2019

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi og áhugamaður um elítu og stéttarskiptingu, fjallar um rannsókn dr. Hauks Arnþórssonar á stjórnmálaelítum Íslands á Facebook síðu sinni. Gunnar segir baráttuna gegn elítum muni lita stjórnmálin næstu árin og áratugina: „Og ekki síst frelsisbaráttu verkalýðsins og annarra kúgaðra hópa. Þarna kemur fram að elítan hefur ekki skaðað þá flokka sem Lesa meira

Fyrirtæki fjármálastjórans fékk yfir 32 milljónir frá Eflingu -„Þessi viðskipti voru ekki pöntuð af mér“

Fyrirtæki fjármálastjórans fékk yfir 32 milljónir frá Eflingu -„Þessi viðskipti voru ekki pöntuð af mér“

Eyjan
21.10.2019

Efling stéttarfélag greiddi fyrirtækinu M.B veitingar alls 32.3 milljónir króna á sjö ára tímabili, en fyrirtækið er í 10% eigu Kristjönu Valgeirsdóttur, þáverandi fjármálastjóra Eflingar. Hin 90 prósentin voru í eigu sambýlismanns Kristjönu, Marks Brink, en fyrirtækið var skráð til heimilis á lögheimili Kristjönu. Stundin greinir frá. Samkvæmt gögnum Stundarinnar greiddi Efling tæplega 41 milljón Lesa meira

Gunnar um „hótun“ Sigurðar –„Farið þið bara, það er ekki eins og þið gerið gagn með því að blóðmjólka almenning“

Gunnar um „hótun“ Sigurðar –„Farið þið bara, það er ekki eins og þið gerið gagn með því að blóðmjólka almenning“

Eyjan
17.10.2019

Sigurður Hannesson, formaður Samtaka iðnaðarins, segir í viðtali við RÚV að stórnotendur raforku hér á landi gætu farið að hugsa sinn gang og flutt starfsemi sína af landi brott ef stjórnvöld móti ekki skýra stefnu um samkeppnishæfi Íslands á raforkumarkaði, sem fari þverrandi, með því til dæmis að opinbera orkuverðið og auka gagnsæi og svigrúm: Lesa meira

Gunnar fékk nóg: „Brýnna að halda þingmönnum frá alvarlegri umræðu um mikilvæg málefni“

Gunnar fékk nóg: „Brýnna að halda þingmönnum frá alvarlegri umræðu um mikilvæg málefni“

Eyjan
14.10.2019

Gestir Silfurins í gær voru þingmennirnir Páll Magnússon, Guðmundur Andri Thorsson, Þorsteinn Sæmundsson og Halldóra Mogensen. Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson er ósáttur með að þingmenn fái að vaða uppi í umræðuþáttum RÚV, líkt og raunin var um helgina. Segir hann skoðanir þeirra ekki endurspegla ástandið í þjóðfélaginu: „Er ekki of í lagt hjá Ríkisútvarpinu að Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af

Stöð 2 lækkar verð