fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Sjötta slakasta veiðin á villtum laxi á stöng í 46 ár

Gunnar Bender
Föstudaginn 16. október 2020 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir miklar væntingar með sumarið og þá sérstaklega með villta laxinn, er þetta sjötta slakasta veiðin á villtum laxi á stöng í næstum 46 ár.  Í sumar veiddust 23.500 villtir laxar á stöng og það merkilega er að margir þeirra veiddust ofar en einu sinni.

Adrei hefur fleiri  löxum verið sleppt aftur í árnar  hin síðustu árin eftir að þeir hafa tekið agn veiðimanna. Það virðist alls ekki skila miklu.

Auðvitað þarf að skoða veiðina og dæmið í heilt sinni miklu betur. Hverju er þessi stefna að skila og gera fyrir veiðiárnar. Það þarf rannsóknir sem segja eitthvað fyrir veiðiárnar og skila einhverju til lengri tíma litið.

Þetta kemur allt fram  með veiðitölurnar á vef Hafrannsóknarstofnunar, en það veiddust 13.500 fleiri laxar núna í sumar  en fyrir ári síðan. Frábær veiði var í Eystri Rangá og hafa komið þar  á land  um 8600 laxar og ennþá er verið að veiða í henni. Og það er veitt til 20.október.

Við heyrum í veiðimönnum sem voru þar fyrir fáum dögum og voru búnir að fá níu laxa og dagurinn var ekki úti. Þeir bættu við tveimur sem er gott um miðjan október.

Sjóbirtingur hefur verið að veiðast víða. Í ám sem ekki hefur gefið þá marga í gegnum árin en bleikjunni fækkar og fækkar. Það er alls ekki góð tíðindi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi