Veiði í Hólmakvísl, ósasvæði Laxár á Ásum, hófst um miðjan maí mánuð. 20. maí var búið að skrá 56 sjóbirtingar og sjóbleikjur í veiðibók. Sjóbirtingurinn er vel haldinn, feitur og pakkfullur af sandsíli.
Stærsti birtingurinn sem hefur veiðst í vor er 7 5cm langur, en nokkrir birtingar eru um eða yfir 70cm langir. Lax sást á ósasvæðinu sama dag, en engar fregnir eru um að hann sé kominn upp í Laxá eða Vatnsdalsá.
Mynd. Óli Jón Hertervig með nokkra væna laxfiska eftir miðnæturveiði.