,,Veiðin gengur ágætlega hjá okkur en Jökla hefur gefið um 40 laxa. Það eru komnir laxar á nokkra staði eins og Hól flúðina og það í nokkru mæli,“ sagði Þröstur Elliðason hjá Strengjum, er við inntum hann eftir veiðinni fyrir austan.
,,Stærsti laxinn í Jöklu er 93 cm og það var franskur veiðimaður sem veiddi maríulaxinn en hann verður við veiði hjá okkur í nokkra daga. Breiðdalsá hefur gefið 12 laxa en séra Gunnlaugur Stefánsson veiddi stærsta laxinn á Skammadalsbreiðunni, 80 cm fisk,“ sagði Þröstur ennfremur.
Hrútafjarðará hefur gefið 30 laxa og veiðimenn sem voru þar fyrir skömmu sáu laxa víða í ánni.
Mynd. Gunnlaugur Stefánsson með stærsta laxinn úr Breiðdalsá, 80 cm fisk. Mynd Sjöfn.