Margir kylfingar staðsetja boltann á röngum stað í uppsetningunni og því verður erfitt að stjórna boltafluginu og hitta boltann vel. Boltastaðan er eitt af þeim atriðum sem flokkast undir grunnatriði golftækninnar en er oft ekki tekið nægilega föstum tökum af kylfingum.
Skoðum hér myndband þar sem er rætt um boltastöðuna og hvernig æskilegt er að stilla sér upp gagnvart boltanum.