fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Vinsæll kennari lést eftir að hrekkur nemenda fór úr böndunum

Pressan
Mánudaginn 9. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jason Hughes, fertugur kennari við North Hall High School í Gainesville í Bandaríkjunum, lést á dögunum eftir að nemendur framkvæmdu hrekk við heimili hans. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og hafa nokkrir verið handteknir.

Atvikið átti sér stað á fimmtudagskvöld þegar hópur nemenda kom að heimili Hughes og dreifði klósettpappír yfir lóðina við hús hans. Nemendur voru í svokölluðu „junior/senior“-stríði þar sem yngri og eldri nemendur safna stigum með allskonar hrekkjum.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu gekk Hughes út úr húsi sínu til að ræða við ungmennin þegar hann varð var við þau. Hann er sagður hafa hrasað og dottið á götuna um það leyti sem pallbíl, sem átján ára nemandi ók, var ekið af stað. Ók nemandinn bílnum yfir Hughes sem lést á sjúkrahúsi af meiðslum sínum.

Ökumaðurinn, hinn 18 ára Jayden Wallace, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi með ökutæki og ógætilegan akstur. Ef hann verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér þriggja til fimmtán ára fangelsisdóm.

Fjórir aðrir 18 ára nemendur sem voru á staðnum – Elijiah Owens, Aiden Hucks, Ana Katherine Luque og Ariana Cruz – voru einnig handteknir.

Myndir sem áður höfðu verið birtar á samfélagsmiðlum sem tengjast leiknum sýna að heimili Hughes hafði verið skotmark sambærilegs gríns áður. Samkvæmt reglum sem birtar voru þar á síðasta ári gátu nemendur fengið stig fyrir að gera hrekki við heimili kennara.

Atvikið varð aðeins nokkrum klukkustundum eftir að skólayfirvöld í Hall-sýslu hvöttu nemendur til að hætta þessari hefð. Í yfirlýsingu sögðu yfirvöld að hrekkirnir hefðu á undanförnum gengið of langt og valdið skemmdum á eignum.

Hughes lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga