fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum

Pressan
Mánudaginn 9. mars 2026 06:30

Volkswagen ID.3 rafbíll.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kuldi hefur áhrif á drægni, hleðslu og líftíma rafhlöðunnar í rafbílum. Þetta kemur sumum rafbílaeigendum á óvart en þeir þurfa að hafa þetta í huga. Með því að gera smávegis breytingar á daglegum venjum er hægt að draga úr slitinu og fá meira út úr bílnum í köldustu mánuðum ársins.

Kuldinn hefur áhrif á drægni bílsins og rafhlöðuna. Þegar hitinn lækkar virka efnin í rafhlöðunni minna og það hefur í för með sér að rafbíllinn notar meiri orku í að hita sig upp og um leið styttist drægni hans.

Stuttar ferðir í frosti eru sérstaklega slæmar fyrir rafhlöðuna því þá nær hún sjaldnast kjörhitastigi. Þetta getur með tímanum aukið slit og orkunotkun. TV2 skýrir frá þessu.

Ein besta aðferðin til að hlífa rafhlöðunni er að forhita bílinn. Þegar hann er forhitaður, meðan hann er tengdur hleðslustöðinni, notar hann rafmagn frá raforkukerfinu en ekki rafhlöðunni.

Þetta eykur drægnina og dregur úr álaginu á rafhlöðuna þegar aksturinn hefst.

Forðastu að hlaða bílinn að fullu í miklu frosti. Það er ekki alltaf gott að fullhlaða rafhlöðuna þegar kalt er. Það er betra að hlaða upp í um 80% því það hlífir rafhlöðunni og lengir líftíma hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga