fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Sérfræðingur segir marga drekka kaffi á röngum tíma dagsins

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 13:30

Það er ekki sama hvenær dags kaffið er drukkið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaffi er fastur hluti af tilveru margra, svo mikilvægt að sumir geta ekki gert sér í hugarlund hvernig þeir geti þraukað einn dag án kaffis.

Margir byrja daginn á því að fá sér kaffisopa, jafnvel áður en þeir ná að opna augun alveg. Síðan fylgir hver kaffibollinn á fætur öðrum yfir daginn.

Margir drekka því marga kaffibolla á hverjum degi og kaffidrykkjan er eiginlega orðin að atburði sem tengist samveru með öðru fólki og pásum frá vinnunni og veitir auk þess orku sem kemur sér vel þegar tekist er á við verkefni dagsins.

Að sögn Michael Breus, svefnsérfræðings, þá getur skipt miklu máli hvenær þú drekkur kaffi því það tengist því hversu mikill ávinningurinn af kaffidrykkjunni er.

Hann segir að það sé best bíða í um 90 mínútur með að fá sér fyrsta kaffibollann eftir að farið er á fætur. Ástæðuna er að finna í hormónum líkamans. Þegar við vöknum er magn adrenalíns og kortísóls frekar hátt því þessir hormónar hjálpa líkamanum við að komast í gang.

„Þegar þú ert með heila, sem er fullur af adrenalíni og kortísól, og þú bætir koffíni við, þá er það eins og að gefa manneskju, sem notar kókaín, dauft te,“ sagði hann að sögn Daily Express.

Hann sagði að koffínið hafi því minni áhrif ef þess er bætt við náttúrulegt orkuskot líkamans.

Hann ráðleggur fólki því að drekka vatn á fyrstu 90 mínútunum eftir að vaknað er því það hjálpi líkamanum að takast á við þann vökvamissi sem hann verður fyrir á nóttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga