
Hann sagði meðal annars: „Þetta er svo hræðileg blanda af því að við erum á einn eða annan hátt með stjórnarskrárkreppu . . . En við erum með mann með heilabilun, ókei? Slæma heilabilun, þannig að viðkomandi hefur ekki neina sjálfsstjórn eða dómgreind.“
Davis Ingle, talsmaður Hvíta hússins, vísaði þessum ummælum Gartner á bug og sagði að sögn International Business Times að Trump sé greindasti, aðgengilegasti og orkumesti forsetinn í sögu Bandaríkjanna.