fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 11:30

Mynd:publicdomainpictures.net

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugleiðir þú stundum hvað líkamsstaða þín segir um þig? Hefurðu til dæmis íhugað hvað líkamsstaðan segir þegar þú gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Það virðist svo sem ekki vera neitt sérstaklega merkilegt við að ganga um með hendur fyrir aftan bak en þetta getur sagt ótrúlega mikið um persónuleika þinn og hugarástand.

Sálfræðingar og sérfræðingar í samskiptum hafa auðvitað skoðað þetta og komist að ýmsu athyglisverðu að sögn lefimerida.

Ein algengasta túlkunin er að þessi líkamsstaða sýni að viðkomandi sé valdsmannslegur og hafi trú á sjálfum sér.

Kennarar, herforingjar og eldra fólk er oft beint í baki og horfir fram á við á meðan það er með hendurnar fyrir aftan bak. Með því sýnir það að það hafi stjórn á hlutunum. Ef þú hefur staðið fyrir framan kennara, sem var með þessa líkamsstellingu, þá veistu að þetta snerist um virðingu og að hafa stjórn á hlutunum.

En það eru auðvitað undantekningar á þessu eins og nær öllu. Ef þessi líkamsstelling er afslöppuð og hendurnar aðeins lauslega tengdar saman fyrir aftan bak, þá er það merki um öryggi og vellíðan. Þetta sést oft hjá eldra fólki sem gerir þetta bara af gömlum vana, ekki til að sýna vald eða eitthvað slíkt, bara af því að þetta er þægilegt og fólkið þekkir þetta vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Er hættulegt að drekka sódavatn daglega?

Er hættulegt að drekka sódavatn daglega?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Réttargeðlæknir með ótrúlega kenningu um Jeffrey Epstein – Gæti verið á lífi

Réttargeðlæknir með ótrúlega kenningu um Jeffrey Epstein – Gæti verið á lífi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að drekka vatn áður en þú færð þér morgunkaffið

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að drekka vatn áður en þú færð þér morgunkaffið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga