fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Er hættulegt að drekka sódavatn daglega?

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 17:30

Sódavatnsvélar eru til á mörgum vinnustöðum og heimilum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá mörgum er það hluti af hversdagslífinu að drekka sódavatn, það er kolsýrt vatn án bragðefna, og margir eiga SodaStream tæki og nota óspart.

Sódavatn kemur í stað gosdrykkja hjá mörgum og jafnvel í staðinn fyrir safa og áfenga drykki. Flestir vita að það er hollara að drekka sódavatn en gosdrykki en sumir hafa samt sem áður áhyggjur af hvort sódavatnið hafi neikvæð áhrif á líkamann ef þess er neytt oft á dag.

Real Simple leitaði til þriggja næringarfræðinga og spurði út í þetta. Þeir sögðu að fyrir flesta sé hættulaust að drekka sódavatn oft á dag án þess að þurfa að hafa áhyggjur, sérstaklega ef þeir drekka sódavatnið frekar en sykraða drykki.

Laura Hershey, næringarfræðingur, sagði að vatn og sódavatn hafi svipuð áhrif á vökvajafnvægi líkamans. Kolsýrt vatn veitir sömu tilfinningu í munninum og flestir tengja við drykkju gosdrykkja en kosturinn er að engin viðbætt efni eða sykur fylgja sódavatninu.

Adiana Castro, næringarfræðingur, sagði að einmitt þessi tilfinning í munninum geti auðveldað fólki að halda sig við góðar venjur þegar löngunin í eitthvað með kolsýru sækir að.

Sumar tegundir sódavatns eru hreint vatn og kolsýra en í sumar er búið að bæta efnum á borð við kalsíum og magnesíum.

Castro benti á að kolsýran geti valdið óþægindum í maga hjá sumum og Hershey sagði að sýran í kolsýrunni geti haft smávegis slæm áhrif á glerunginn, sérstaklega ef sódavatn er drukkið ótt og títt yfir daginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga