fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Læknaneminn hélt hann væri í öruggu skjóli til að fremja brot sín – Það reyndist hinn mesti misskilningur

Pressan
Þriðjudaginn 10. mars 2026 07:00

Fulltrúar FBI fylgja Amin um borð í flugvél til Alaska. Mynd/FBI

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

28 ára karlmaður frá Bangladess, Zobaidul Amin, hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir að hafa blekkt fjölda unglingsstúlkna á samfélagsmiðlum og fengið þær til að senda sér kynferðislegar myndir.

Amin þessi var í læknanámi í Kuala Lumpur í Malasíu þegar hann var handtekinn og fluttur til Alaska þar sem hann á yfir höfði sér þungan fangelsisdóm.

Málið var tekið fyrir á fimmtudag og lýsti hann sig þá saklausan af ákærum, að því er fram kemur í frétt AP.

Hótaði að dreifa myndunum frekar

Að sögn saksóknara notaði Amin samfélagsmiðla til að plata ólögráða stúlkur til að senda sér kynferðislega myndir. Þegar þær höfðu sent slíkt efni hafi hann hótað að dreifa því til vina þeirra og fjölskyldu nema þær sendu honum fleiri myndir.

Í ákæru er því lýst að Amin hafi misnotað hundruð ólögráða fórnarlamba á netinu. Hann á einnig að hafa montað sig af því að hafa valdið fórnarlömbum sínum miklum sálrænum skaða, meðal annars þannig að sum þeirra glímdu við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða.

Samkvæmt saksóknurum deildi hann einnig hundruðum mynda og myndbanda af fórnarlömbum sínum á Internetinu og hvatti aðra til að gera slíkt hið sama.

Gefin var út ákæra á hendur Amin í Bandaríkjunum árið 2022 fyrir dreifingu á barnaníðsefni og netsvik. Saksóknarar segja hann hafi oftar en ekki þóst vera unglingspiltur til að öðlast traust fórnarlambanna.

14 ára stúlka lenti illa í klóm hans

Rannsókn málsins hófst þegar 14 ára stúlka í Alaska tilkynnti málið til lögreglu. Hún sagði að eftir að hún sleit öllum samskiptum við hann hefði hann staðið við hótanir sínar og sent klámfengnar myndir af henni til vina hennar og fylgjenda á netinu.

Lögregla hóf þá rannsókn málsins og fann hver það var sem stóð á bak við brotin og komst að því að hann hafði beitt hundruð annarra ólögráða einstaklinga svipuðum aðferðum.

Samkvæmt gögnum saksóknara sagði Amin fórnarlömbum sínum að eina leiðin til að fá hann til að hætta að krefjast fleiri mynda væri að þær fengju aðra til að senda honum slíkt efni.

Saksóknarar segja að Amin hafi talið sig öruggan þar sem hann var staddur í Malasíu á meðan fórnarlömb hans voru að mestu í Bandaríkjunum. Í samskiptum við eitt fórnarlamb á hann meðal annars að hafa sagt að lögreglan myndi „ekki gera neitt“ og að hún myndi ekki hafa uppi á honum þar sem hann byggi ekki nálægt fórnarlambinu.

Tilraunir til að framselja Amin til Bandaríkjanna báru ekki árangur, en með aðstoð FBI tókst malasískum yfirvöldum að ákæra hann fyrir brot gegn hegningarlögum landsins. Svo fór að honum var vísað frá Malasíu og þá tókst FBI að taka hann í sína vörslu og flytja hann til Alaska.

„Skuldbinding FBI til að vernda börn gegn misnotkun breytist ekki, hvort sem gerandi er í Bandaríkjunum eða erlendis,“ sagði forstjóri FBI, Kash Patel, í yfirlýsingu.

Alríkisdómarinn Kyle Reardon úrskurðaði á fimmtudag að Amin skuli sitja áfram í varðhaldi á meðan málið gegn honum er til meðferðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Í gær

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Í gær

Sérfræðingur segir marga drekka kaffi á röngum tíma dagsins

Sérfræðingur segir marga drekka kaffi á röngum tíma dagsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ekki sjóða brokkolí í vatni – Þessi aðferð er miklu betri að sögn kokks

Ekki sjóða brokkolí í vatni – Þessi aðferð er miklu betri að sögn kokks
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur hefur efasemdir um andlega heilsu Trump – „Við erum með mann með heilabilun“

Sálfræðingur hefur efasemdir um andlega heilsu Trump – „Við erum með mann með heilabilun“