fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Örvæntingarfullt ákall til mannræningjans – Vilja sönnun að móðir þeirra sé á lífi

Pressan
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska sjónvarpsstjarnan Savannah Guthrie og systkini hennar hafa sent örvæntingarfullt ákall vegna hvarfs móður þeirra um liðna helgi.

Lögregla telur að konunni, hinni 84 ára Nancy Guthrie, hafi verið rænt af heimili sínu aðfaranótt sunnudags. Í gær var greint frá því að hugsanlegt lausnargjaldsbréf hefði borist en óvíst er hvort það tengist hinu meinta mannráni. Lögregla er enn með það til rannsóknar.

Í ákalli sem systkinin birtu í gærkvöldi kölluðu því eftir að sönnun kæmi fram um að móðir þeirra væri á lífi.

„Við þurfum að vita, án nokkurs vafa, að hún sé á lífi og að þú hafir hana. Við viljum heyra frá þér og við erum tilbúin að hlusta. Vinsamlegast hafðu samband við okkur,“ sagði tárvot Savannah sem er umsjónarkona sjónvarpsþáttarins Today á NBC.

Rannsókn lögreglu á málinu hefur verið umfangsmikil og var greint frá því í vikunni að blóðdropar hefðu fundist og merki um að brotist hefði verið inn í hús Nancy.

Í ákallinu töluðu Savannah og systir hennar, Annie, beint til móður sinnar.

„Mamma, ef þú heyrir þetta, þú ert sterk kona. Þú ert dýrmæt dóttir Guðs. Við trúum og vitum að jafnvel í þessum dal er hann með þér. Allir eru að leita að þér, mamma. Alls staðar. Við munum ekki hætta. Börnin þín munu ekki hvílast fyrr en við erum saman á ný,“ sagði Savannah.

Í frétt CNN er rætt við Andrew McCabe, fyrrverandi aðstoðarforstjóra FBI, sem telur að ákall systkinanna sé merki um að fjölskyldan hafi ekki fengið trúverðuga lausnargjaldskröfu.

„Fyrir mér lítur þetta út eins og tilraun til að koma á einhvers konar samskiptum,“ sagði hann seint í gærkvöldi. „Við vitum þetta ekki með vissu, en mér finnst þetta vera nokkuð sterkt merki um að þau telji sig ekki enn hafa fengið raunverulega lausnargjaldskröfu.“

„Það sem maður heyrir fjölskylduna segja er: „Við erum tilbúin að tala, hafðu samband við okkur, við viljum bara vita að þú hafir móður okkar.“ Það er ekki eitthvað sem þú myndir gera ef þú værir þegar í viðræðum við einhvern sem þú teldir að hefði viðkomandi í haldi.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu