fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Áhrifavaldur afhjúpaður í Epstein-skjölunum: „Veistu hvað er stærsta vandamálið við að vera vinur þinn?”

Pressan
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 07:00

Peter Attia. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn, lífstílsráðgjafinn og læknirinn Peter Attia sætir nú gagnrýni eftir að í ljós kom að hann átti í nánum tölvupóstsamskiptum við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Attia lýsir samskiptunum í dag sem „vandræðalegum“.

Epstein-skjölin, sem birt voru á föstudag, innihalda yfir 1.700 tilvísanir í Attia og átti stór hluti samskiptanna sér stað eftir að Epstein hafði verið sakfelldur í vændismáli. Attia hefur meðal annars skrifað bækur um langlífi og byggt upp vörumerki í kringum heilsu og sérsniðna læknisráðgjöf fyrir efnameiri viðskiptavini.

Í yfirlýsingu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X í gær sagðist Attia aldrei hafa orðið vitni að „ólöglegri hegðun“ hjá Epstein eða orðið þess var að hann væri í samskiptum við einstaklinga undir lögaldri. Þá hefði hann ekki ferðast í einkaþotu Epsteins eða heimsótt eyju hans þar sem vafasamir hlutir – vægt til orða tekið – áttu sér stað.

Þrátt fyrir þetta sýna tölvupóstarnir að Attia átti í grófum og kynferðislegum orðaskiptum við Epstein um konur og veitti honum jafnframt læknisráð.

New York Times vísar meðal annars í samskipti þeirra á milli árið 2016 þar sem kynfæri kvenna bárust í tal. Skrifaði Attia í einum tölvupóstinum: „P–ur eru vissulega lágkolvetna. Bíð þó enn eftir niðurstöðum um glúteninnihald,“ sagði hann.

Í öðrum tölvupósti frá 2015 skrifaði Attia að hann hefði „fengið nýja sendingu,“ án þess að skýrt kæmi fram hvað átt væri við. Attia sagði í yfirlýsingu sinni í gær að hann hefði verið að vísa til sykursýkislyfsins metformins.

Epstein svaraði honum stuttu síðar og sagði einnig hafa verið að fá sendingu og birti mynd af fullorðinni konu sem gerð var óþekkjanleg í skjölunum sem birt voru á föstudag. Attia svaraði þá: „Segðu mér að þú hafir fundið þessa mynd á netinu… djöfull,“ en Epstein skrifaði til baka: „Hræddur um ekki.“

Í framhaldi skrifaði Attia: „Veistu hvað er stærsta vandamálið við að vera vinur þinn? Lífið sem þú lifir er svo geggjað, og samt get ég ekki sagt neinum frá…“

Attia segist skammast sín fyrir orðaskiptin og hefur hann beðist afsökunar á þeim. „Að lesa þetta í dag er mjög vandræðalegt og ég ætla ekki að verja það.“

Attia sagðist í yfirlýsingu sinni hafa kynnst Epstein í gegnum „áhrifamikinn kvenkyns leiðtoga í heilbrigðisgeiranum“ árið 2014 en á þeim tíma var hann að safna fé til vísindarannsókna.

Hann heldur úti vinsælu hlaðvarpi og rekur heilsuklíník sem sögð er rukka stórar upphæðir til að útbúa sérsniðnar heilsuáætlanir fyrir efnamikla einstaklinga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér