
Mjög snjóþungt hefur verið á austurströnd Bandaríkjanna síðustu daga og leikur grunur á að pilturinn hafi látist af völdum kolmónoxíðeitrunar. Mun pilturinn hafa sett bílinn í gang en ekki áttað sig á því að púströr bílsins var á kafi í snjó.
Lögreglan í Newport fann unga manninn, Joseph Boutros, sem var 21 árs, meðvitundarlausan í bifreið á bílastæði um klukkan 19:20 að sögn staðarmiðilsins WMUR. Bíllinn var hulinn snjó, þar á meðal púströrið, sem gerði það að verkum að útblásturinn leitaði inn í bílinn.
Boutros, sem var nemi við Salve Regina University, var fluttur á Newport-sjúkrahúsið þar sem hann var úrskurðaður látinn skömmu síðar.
Bandaríska veðurstofan segir að um 50 sentímetrar af snjó hafi fallið í mikilli úrkomu sem gekk yfir svæðið á mánudag. Lögregla segir ljóst að um slys hafi verið að ræða og minnir á mikilvægi þess að tryggja að snjór sé ekki fyrir púströrum þegar bílar eru í lausagangi.