fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Pressan

Dagleg banananeysla getur haft áhrif á blóðþrýstinginn

Pressan
Mánudaginn 23. febrúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjarta- og æðaheilbrigði er ekki eitthvað sem er venjulega hægt að beita skyndilausnum á. Hjá flestum tengist þetta hægri þróun tengdri síendurteknum venjum.

Þetta á líka við um það sem fólk velur að borða. Stundum getur virst sem þetta val skipti litlu máli en með tímanum getur þetta haft áhrif á jafnvægið í líkamanum.

Margir tengja blóðþrýstinginn við lyf og saltneyslu. Næringarfræðingar benda þó í auknum mæli á það sem skortir í matinn okkar og segja að það geti skipt jafn miklu máli og það sem við fáum of mikið af.

Of hár blóðþrýstingur er ansi algengur en margar rannsóknir hafa sýnt fram á að margir innbyrða of lítið af kalíum.

Næringarfræðingar, sem EatingWell vitnar í, segja að þetta tengist of mikilli neyslu ofurunninna matvæla og lítilli neyslu á ávöxtum og grænmeti.

Þeir ráðleggja fólki því að borða fleiri banana. Það er auðvelt að nálgast þá og það er auðvelt að borða þá reglulega.

Í mataræði, eins og DASH, eru bananar einmitt taldir upp sem traust uppspretta kalíums.

Kalíum hjálpar líkamanum að koma jafnvægi á vökvabúskapinn og vinnur gegn of miklu magni natríums. Segja næringarsérfræðingar að kalíum geti hjálpað æðunum við að slaka á og komið betra jafnvægi á blóðþrýstinginn.

Bananar innihalda trefjar og fleira sem styrkir starfsemi æðakerfisins. Þeir hafa einnig jákvæð áhrif á heilbrigði þarmaflórunnar.

Fyrir flesta er lítið mál að borða banana en þeir sem eru með sykursýki, nýrnasjúkdóma eða taka lyf, sem hafa áhrif á kalíumjafnvægi líkamans, ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir fara að borða banana reglulega.

Byggt á umfjöllun EatingWell og NIH.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir

Talan þín getur veitt vísbendingu um hversu lengi þú lifir
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sjötug amma var á barmi þess að fara á eftirlaun þegar ógæfumaðurinn birtist skyndilega

Sjötug amma var á barmi þess að fara á eftirlaun þegar ógæfumaðurinn birtist skyndilega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Myrti 5 mánaða stjúpson sinn í skapofsakasti – „Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin,“ segir móðirin

Myrti 5 mánaða stjúpson sinn í skapofsakasti – „Ég fæ aldrei að sjá hann taka fyrstu skrefin,“ segir móðirin