
Andrew Paul Johnson hefur haft í nógu að snúast undanfarin ár. Hann tók þátt í áhlaupinu á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar árið 2021 og hlaut dóm fyrir vikið refsidóm. Þegar Donald Trump tók aftur við sem Bandríkjaforseti var Johnson einn þeirra sem hann náðaði. Nú hefur Johnson aftur komist í kast við lögin en hann hefur verið dæmdur fyrir barnaníð í Flórída. Einn þolenda hans er aðeins 11 ára gamalt barn.
Blaðamaðurinn Tom Dreisbach greindi frá málinu á samfélagsmiðlum, en mörgum þykir fréttin ekki hafa vakið þá athygli sem hún á skilið. Sérstaklega í ljósi þess að fyrir dómi kom fram að Johnson reyndi að múta einum þolanda sínum með því að lofa barninu að það fengi hlutdeild í sanngirnisbótum sem Johnson á von á frá ríkisstjórninni fyrir að hafa ólöglega verið sakfelldur fyrir áhlaupið á þinghúsið.
JUST IN:
A Jan. 6 rioter pardoned by Trump was convicted by a Florida jury of sexually abusing children, including an 11-year-old.
Per police, Andrew Paul Johnson tried to bribe one of his victims by promising to share expected Jan. 6 restitution money from the Trump admin. pic.twitter.com/1xvXI5Mv5z
— Tom Dreisbach (@TomDreisbach) February 11, 2026
Hlaðvarpsstjórnandinn Dan Pfieffer skrifaði færslu um málið og sagði: „Ef forseti frá demókrötum hefði náðað ofbeldisfullan glæpamann sem svo fór og gerði eitthvað á borð við þetta þá yrði ekki talað um annað í stjórnmálunum næstu vikurnar. Það yrði fjölmiðlafár, opinberir fundir og Demókrötum yrði gert að fordæma forsetann. Hvað Trump varðar þá er bara þögn.“
Margir andstæðingar Trump saka nú hægrimenn um hræsni. Þeir séu stöðugt að varpa athygli á þá verstu glæpi sem innflytjendur hafa framið en þegi svo um mál Johnsons sem á nú yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi.
Johnson hefur nú þegar verið sakfelldur fyrir ítrekað barnaníð en refsing verður kveðin upp í mars. Johnson var handtekinn í ágúst en samkvæmt lögregluskýrslu sem NPR hefur undir höndum hafði hann misnotað þolendur sína mánuðum saman.
Málið komst upp þegar móðir eins barnanna uppgötvaði að Johnson hefði sent kynferðisleg skilaboð til 11 ára sonar hennar. Johnson hafi svo reynt að fá drenginn til að þegja yfir brotunum með því að vísa til þess að hann ætti von á sanngirnisbótum upp á rúman milljarð frá ríkisstjórn Donalds Trumps, og að drengurinn gæti fengið eitthvað af peningunum í arf. Að mati lögreglu var Johnson þannig að reyna að koma í veg fyrir að drengurinn opnaði sig um kynferðisofbeldið.
If a Democratic president pardoned a violent criminal who went on to do something like this, it would be the biggest story in politics for weeks.
There would be a media feeding frenzy, hearings, and Dems would be asked to rebuke the President.
With Trump, its just crickets https://t.co/WGNIXcfmPR
— Dan Pfeiffer (@danpfeiffer) February 12, 2026
BREAKING: US Capitol rioter pardoned by Trump just found guilty of child sex abuse.
Andrew Paul Johnson was convicted by a Hernando County jury of five charges, including molesting a child under 12 and another child under 16.
Trump keeps bragging about arresting immigrants,… pic.twitter.com/QWtFk8WXz4
— Brian Krassenstein (@krassenstein) February 12, 2026
Meet Andrew Johnson. He was at the Capitol on January 6th.
He molested a child in 2024. Then, Trump pardoned him.
Trump loves protecting pedophiles. pic.twitter.com/l9DK2b4o2S
— Home of the Brave (@OfTheBraveUSA) January 20, 2026
Donald Trump pardoned a pedophile who was supposed to spend a year in prison.
Instead, he was set free and sexually assaulted children. https://t.co/bZSnUITg7y
— Jon Favreau (@jonfavs) February 12, 2026