fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fékk tíu ára fangelsi fyrir að ógna lögreglumanni með keðjusög

Pressan
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albani sem ógnaði lögreglumanni í Paisley í Skotlandi, í maí árið 2024, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi.

Maðurinn, sem er 32 ára gamall, ók stolnum Volkswagen inn í merktan lögreglubíl. Hann tók síðan upp keðjusög og gerði sig líklegan til að ráðast á lögreglumann sem hljóp undan honum.

Lögreglumaðurinn sagðist hafa óttast um líf sitt og gerði allt sem hann gat til að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá árásarmanninum sem hrópaði níðyrði um lögregluna er hann hljóp með keðjusögina í höndunum um stræti skosku borgarinnar.

Dómari í málinu sagðist aldrei hafa vitað til þess að maður hefði beitt keðjusög sem vopni.

Sakborningurinn albanski heitir Liridon Kastrati og lét hann öllum illum látum í dómsalnum eftir að dómur hafði verið kveðinn upp yfir honum. Hann var sakfelldur fyrir manndrápstilraun þó að honum hafi ekki tekist að skaða lögreglumanninn.

Sjá nánar um málið á vef Mirror.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu