
Um er að ræða svokallaða fastkjarnarafhlöðu (e. solid-state battery) sem er mun öflugri en hefðbundnar liþíum-rafhlöður.
Í frétt Live Science kemur fram að vísindamenn við Nankai-háskóla í borginni Tianjin hafi þróað rafhlöðuna og sett hana í tilraunabíl og prófað í langkeyrslu.
Orkuþéttleiki fastkjarnarafhlöðunnar er allt að tvöfalt hærri en í hefðbundnum rafhlöðum, en þéttleikinn segir til um hversu mikla orku rafhlaða getur geymt miðað við þyngd hennar.
Þá er kosturinn við rafhlöðuna sá að það tekur minni tíma að hlaða hana og þá þykir hún mun öruggari en liþíum-rafhlaðan sem hitnar mjög hratt.
Óvíst er hvenær bílar með slíkum rafhlöðum koma á markað en í frétt Live Science segir að sýningar á tækninni séu fyrirhugaðar síðar á árinu.
Tekið er fram í greininni að niðurstöður rannsóknarinnar hafi ekki enn verið birtar í ritrýndu vísindariti. Þó sé ljóst að prófanir á rafhlöðunum eru að færast hratt frá rannsóknarstofum yfir í raunverulegar prófanir á ökutækjum.