fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 16:30

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú finnur kannski ekki alltaf fyrir því en þreyta, höfuðverkur, löngun í eitthvað og óróleika í líkamanum, getur oft verið afleiðing af því sama – þú færð ekki nóg að drekka.

En góðu fréttirnar eru að þú getur breytt þessu á einum degi og líkaminn mun elska þig fyrir vikið.

Líkaminn hefur þörf fyrir um tvo lítra af vökva daglega, það er háð því hversu mikið þú hreyfir þig.

Ef þú, eins og svo margir yfir fertugu, finnur ekki alltaf greinilega fyrir þorsta, þá getur það endað með að þú ruglar honum saman við hungurtilfinningu. Woman.dk skýrir frá þessu og bendir á að þetta hafi í för með sér óþarfa át sem aftur verði til þess að kílóin safnist fyrir á líkamanum.

Vatn kemur einnig að gagni í baráttunni við hina klassísku síðdegisþreytu, höfuðverk og lélega einbeitingu. Vatnið heldur slímhimnunni rakri og ónæmiskerfinu í toppformi.

Svo er vatn nauðsynlegt til að maturinn geti farið í gegnum þarmana án vandræða.

Hér eru fimm góð ráð hvað þetta varðar:

Drekktu eitt glas af vatni þegar þú ferð á fætur og eitt áður en þú ferð í rúmið, gerðu þetta að fastri venju.

Settu þér markmið – Tæmdu hálfslítra flöskuna tvisvar á dag, fyrir hádegi og eftir hádegi.

Gerðu vatnið spennandi með því að setja mintu, ber, sítrónu eða gúrku í það, þá verður það ekki leiðinlegt.

Te og kaffi telst með en gosdrykkir, safi og djús telst bara sem aukaneysla.

Borðaðu vatnið þitt – Gúrka, melóna, paprika og jarðarber innihalda mikið af vökva.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla
Pressan
Í gær

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?

Hvað táknar það þegar maður gengur um með hendurnar fyrir aftan bak?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga

Barnamorðingi látinn eftir að hann var barinn til óbóta í „skrímslasetrinu“ – Árásarmanninn var leiddur burt í járnum við mikinn fögnuð samfanga