fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Pressan

Hrollvekjandi frásagnir rússneskra hermanna – „Núllstilling“

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 13:30

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Að núllstilla.“ Þannig lýsa fjórir rússneskir hermenn hryllingnum og grimmdinni innan rússneska hersins í Úkraínu. Þeir útskýra hvað „núllstilla“ þýðir.

Þetta gera þeir í heimildarmyndinni „The Zero Line: Inside Russia‘s War“ sem BBC gerði. Hermennirnir skýra frá miklu mannfalli, sjálfsmorðsárásum, óhugnanlegum pyntingum og „núllstillingum“.

Tveir þeirra segjast hafa séð „núllstillingu“ með eigin augum. Hún snýst um að hermenn eru teknir af lífi af yfirmönnum sínum fyrir að neita að hlýða skipunum.

Annar þeirra segir slíkar aftökur vera „alveg eðlilegar“. Svo eðlilegar að rússneskir hermenn kalla þær „núllstillingu“. Orðið er sótt í tölvuleikjaheiminn þegar persóna í leik deyr og maður missir allt það sem maður hafði sankað að sér, vopn, stig eða þess háttar.

„Ég þekkti þá,“ sagði einn hermaðurinn sem sagðist hafa séð fjóra félaga sína tekna af lífi. „Ég man að einn þeirra öskraði: „Ekki skjóta, ég geri hvað sem er!““ segir hann í heimildarmyndinni. Maðurinn flúði að lokum vígvöllinn og rússneska herinn.

Hann segir að yfirmaður hermannsins hafi ekki hlustað á hann og hafi tekið í gikkinn og skotið hann.

Annar hermaður segir að hann hafi séð lík tuttugu rússneskra hermanna í gröf eftir að þeir voru „núllstilltir“.

Einnig kemur fram í heimildarmyndinni að hermenn hafi einnig verið pyntaðir fyrir að neita að taka þátt í árásum í fremstu víglínu og segja hermennirnir þessar árásir einna líkastar sjálfsmorðsárásum.

Einn hermannanna segir að þeir hermenn, sem neituðu að taka þátt í því sem hermennirnir kalla „kjötárásir“ gegn úkraínsku varnarlínunum, hafi verið sveltir, mígið hafi verið á þá og þeim gefið raflost. Síðan hafi þeir verið neyddir til að taka þátt í „kjötárás“ en þær eru kallaðar það vegna þess að Úkraínumenn brytja rússnesku árásarsveitirnar niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Í gær

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er hættulegt að drekka sódavatn daglega?

Er hættulegt að drekka sódavatn daglega?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Réttargeðlæknir með ótrúlega kenningu um Jeffrey Epstein – Gæti verið á lífi

Réttargeðlæknir með ótrúlega kenningu um Jeffrey Epstein – Gæti verið á lífi