fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Pressan
Sunnudaginn 1. mars 2026 13:30

Það á ekki að geyma allt grænmeti í ísskápnum. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar heim er komið úr verslunarleiðangri setja flestir grænmetið bein í ísskápinn og hugsa ekki nánar út í það. Það virðist góður kostur að setja það í ísskápinn og þess utan er oft meira pláss í honum en á borðinu.

En það er full ástæða til að íhuga þetta vel því það er góð ástæða fyrir að sumt grænmeti er ekki í kæli í búðum. Það getur misst bragð ef það er geymt í kæli.

Iselin Bogstrand Sagen, hjá frukt.no, segir að tómatur sé efst á lista yfir grænmeti sem missir bragð við að vera geymt í ísskáp. KK skýrir frá þessu.

Kuldinn deyfir ilminn og breytir áferðinni þannig að ávaxtakjötið verður auðveldlega mjölkennt. Tómata á að geyma við stofuhita á eldhúsborðinu en ekki í beinu sólarljósi því þá geta þeir orðið slappir og ofþroskaðir.

Gúrkur koma næst á listanum. Þær virðast eiginlega skapaðar til að vera í ísskáp vegna þess hversu mikið vatn er í þeim en þversögnin er að kuldi getur valdið frosttjóni á þeim. Gúrkan verður slöpp og missir ferskleikann og bragð.

Sagen sagðist mæla með að gúrkur séu geymdar við stofuhita þar til þær eru skornar í fyrsta sinn, eftir það sé rétt að setja þær í ísskáp.

Sætar kartöflur, eggaldin og skvass eru einnig grænmeti sem betur fer á að geyma við stofuhita.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein