fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Pressan
Sunnudaginn 1. mars 2026 12:30

Sænskir lögreglumenn við störf. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú á að verða auðveldara að senda útlendinga, sem hljóta dóm í Svíþjóð, úr landi. Sænska ríkisstjórnin kynnti áætlun á miðvikudaginn um hertar reglur varðandi brottvísanir brotamanna.

SVT skýrir frá þessu og segir að ríkisstjórnin leggi til að öllum þeim, sem séu dæmdir til fangelsisvistar og eru ekki sænskir ríkisborgarar, verði sjálfkrafa vísað úr landi.

Johan Forssell, ráðherra innflytjendamála, sagði á fréttamannafundi, þar sem tillögurnar voru kynntar, að nú sé kominn tími til að hætta með einhverja eftirgjöf í þessum málum.

Hann sagði að með þessu verði löggjöfin í Svíþjóð sú harðasta á Norðurlöndunum, harðari en í Danmörku.

Í dag er aðeins hægt að vísa útlendingum úr landi í Svíþjóð ef þeir eru dæmdir í minnst sex mánaða fangelsi.

En þrátt fyrir að lögunum verði breytt eiga dómstólar að taka tillit til hversu sterk tengsl hins dæmd eru við Svíþjóð.

Lögunum var síðast breytt 2022 og þau hert en það hefur ekki orðið til þess að fleiri útlendingum hafi verið vísað úr landi.

Forssell sagði að of fáum erlendum afbrotamönnum sé vísað úr landi og að það sé „kerfisvilla“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein