fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Pressan

Grunaður um að hafa valdið dauða þriggja ára stúlku

Pressan
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 21:30

Jeroen Jarrel Coombs. Lögreglumynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn í Marion-sýslu í Florida, BNA, hefur ákært 32 ára mann, Jeroen Jarrel Coombs, fyrir ofbeldi gegn barni sem leiddi til dauða. Um er að ræða atvik sem varð þann 19. febrúar í hjólhýsahverfi í sýslunni. Viðbragðsaðilar voru kallaðir að heimili þar vegna þess að barnið var ekki með meðvitund.

Ættingi barnsins var á vettvangi og sagði lögreglumönnum að Coombs hefði valdið dauða barnsins. Hann hafði verið einn með barninu, sem var dóttir kærustu hans, á meðan kærastan var í handsnyrtingu. Vitnið er frænka barnsins og eigandi hjólhýsisins. „Hann drap hana,“ sagði hún við lögreglumenn sem komu á vettvang.

Coombs er sagður hafa viðurkennt í lögregluyfirheyrslu að hafa valdið áverkum á barninu. Hann sagðist hafa bundið fætur og hendur barnsins með málningarlímbandi til að koma í veg fyrir að hún færi með hendurnar í bleiuna á nóttunni. Hann viðurkenndi að hafa tekið barnið upp er það var bundið og misst það í gólfið. Hann viðurkenndi líka að hafa slegið barnið margsinnis.

Hann hringdi ekki í neyðarlínuna fyrr en 40 mínútum eftir að barnið missti meðvitund. Hann gaf þá skýringu á töfinni að hann hefði verið hræddur. Þegar barnið hafði verið flutt á sjúkrahús kom í ljós að það var ekki með lífsmarki.

Það fylgir frétt True Crime News af málinu að Coombs hafi haft samband við móður barnsins á meðan hún var á snyrtistofunni og sýnt henni mynd af lífvana barninu á Facetime. Móðirin hafið skilið barnið eftir í umsjá Coombs á meðan hún fór á snyrtistofuna. Samkvæmt fréttinni á móðirin ekki ákæru yfir höfði sér en Coombs er í gæsluvarðhaldi og má eiga von á þungum fangelsisdómi.

Hann hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi. Í báðum tilvikum réðst hann á barnsmæður sínar. Ekki er vitað hvernig samband hans við móður látnu stúlkunnar var.

Sjá nánar um málið hér.

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie
Pressan
Fyrir 2 dögum

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán

Breskir túristar handteknir á Benidorm fyrir að setja á svið mannrán
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur þegar yfir 70 tígrisdýr drápust

Harmleikur þegar yfir 70 tígrisdýr drápust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt

Sorglegar vendingar í máli 85 ára afa sem var rænt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum

Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum