
Niðurstöður nýrrar rannsóknar koma eflaust mörgum á óvart því þær eru að í vissum tilfellum geti skjánotkun haft jákvæð áhrif en þó aðeins ef notkunin er takmörkuð.
Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Journal of Community & Applied Social Psychology, kemur fram að heimilið sé ekki alltaf staður þar sem ró og hvíld á sér stað.
Vísindamennirnir greindu gögn um rúmlega 61.000 gifta Bandaríkjamenn og litu á samhengið á milli fjölskyldustærðar, stress og hvað fólk gerir í frítíma sínum.
Niðurstöðurnar sýna að fólk á fjölmennum heimilum, sérstaklega þar sem börn búa, er oftar þreytt og undir álagi.
Fjölskyldustærðin snýst í raun um hversu mörgum kröfum fólk mætir þegar það kemur heim, sagði Soo Min Toh, atferlisfræðingur hjá University of Toronto Mississauga og meðhöfundur rannsóknarinnar.
Þetta þýðir að það geta verið gerðar jafn margar kröfur til fólks á heimilinu og á vinnustaðnum.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að skjánotkun geti verið eins og stutt hvíld frá kröfum hversdagsins.
Foreldrar, sem horfðu á sjónvarp eftir vinnu, sögðust finna fyrir minna stressi en aðrir.
Sama mynstur kom fram hjá kanadískum háskólastúdentum sem vísindamennirnir beindu sjónum sínum einnig að. Símanotkun þeirra dró úr neikvæðum tilfinningum þeirra heima fyrir.
Í annarri rannsókn, sem sömu vísindamenn gerðu, kom í ljós að ungt fullorðið fólk, sem bjó með öðru ungu fólki, átti auðveldara með að sinna daglegum verkefnum sínum ef það eyddi smá tíma í að spila tölvuleiki.
Vísindamennirnir leggja áherslu á að niðurstöðurnar séu ekki hvatning til fólks um að nota skjái ótakmarkað. Stutt og meðvituð skjánotkun getur veitt smávegis andlegt svigrúm.
Byggt á umfjöllun Popular Science og Journal of Community & Applies Social Psychology.