fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Martröð foreldra eftir að sjö ára sonur þeirra varð fyrir bíl – Nú hafa þeir verið handteknir

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskylduharmleikur í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur tekið nýja og óvænta stefnu eftir að foreldrar sjö ára drengs, sem varð fyrir bíl þann 27. maí síðastliðinn, voru handteknir og ákærðir fyrir að skilja hann eftir án eftirlits.

Drengurinn, Legend Jenkins, var að labba út í búð ásamt tíu ára gömlum bróður sínum þegar hann varð fyrir jeppabifreið á leið yfir götu í Gastonia um kvöldmatarleytið þennan örlagaríka dag.

Hann var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild og þaðan á Levine-barnaspítalann í Charlotte þar sem hann lést af sárum sínum síðar þetta sama kvöld.

Móðir bræðranna sagði að þetta hefði verið í fyrsta sinn sem þeim var hleypt einum út í búð saman.

Í frétt Fox News kemur fram að foreldrar Legend, Jessica Ivey og Sameule Jenkins, hafi verið handteknir fyrir manndráp af gáleysi (e. felony involuntary manslaughter) og vanrækslu barns.

Lögregla segir að börnin hafi verið án eftirlits og rökstyður ákvörðun sína með því að í atvikum sem þessum verði að draga fullorðna til ábyrgðar gagnvart skyldum sínum um að tryggja börnum sínum öruggt umhverfi.

Bifreiðinni var ekið af 76 ára gamalli konu og segir lögregla að ekkert bendi til þess að hún hafi ekið of hratt eða gerst brotleg við lög þegar slysið varð. Hún verður því ekki ákærð.

Kona sem varð vitni að slysinu segir að hún hafi séð Legend stíga út á götu og bróðir hans reynt að toga í hann en án árangurs. Kvaðst konan hafa verið hjá drengnum þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang og fluttu hann á sjúkrahús. „Ég vildi að hann vissi að hann væri ekki einn,“ sagði konan.

Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskylduna á vefnum GoFundMe.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Pornhub mótmælir og ætlar að loka í Frakklandi

Pornhub mótmælir og ætlar að loka í Frakklandi
Pressan
Í gær

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blóðugur og berfættur Ítali náði að flýja eftir 17 daga pyntingar – Tengist rafmynt

Blóðugur og berfættur Ítali náði að flýja eftir 17 daga pyntingar – Tengist rafmynt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Pútín sagður vera að undirbúa hefnd – Yfirmaður þýska heraflans varar NATO við

Pútín sagður vera að undirbúa hefnd – Yfirmaður þýska heraflans varar NATO við