fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 07:00

Harry vill að sögn breyta ættarnafni sínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nöfn og titlar eru mjög viðkvæm mál hjá Harry prins og Meghan Markle, eiginkonu hans. Nú hefur verið skýrt frá því að Harry hafi leitað ráða hjá móðurbróður sínum, Spencer jarli, um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu.

Það eru tæp 30 ár síðan móðir Harry, Díana prinsessa, lést í bílslysi í París, hún var 36 ára.

Harry og Meghan hættu að nota opinbera titla sína þegar þau hættu störfum sem fulltrúar bresku konungsfjölskyldunnar í mars 2020. Þau halda enn HRH titlum sínum (konunglega hátign) en Harry hefur haft þann titil síðan hann fæddist. Þau mega þau ekki nota þennan titil í tengslum við viðskipti.

Mirror segir að titlar séu mjög viðkvæmt málefni fyrir hjónin. Amma Harry, Elísabet II drottning, gaf þeim titlana sem hertoginn og hertogaynjan af Sussex á brúðkaupsdegi þeirra 2018.

Mail on Sunday segir að Harry hafi verið að leita leiða til að taka upp ættarnafn móður sinnar og losna þar með undan því að nota Mountbatten-Windsor ættarnafnið sem börnin hans nota og faðir hans, Karl konungur, hefur í miklum metum.

Harry er sagður hafa rætt þetta við Spencer jarl þegar hann var í einni af fáum ferðum sínum til Bretlands. Spencer sagði honum að mikil lagaleg vandkvæði séu á þessu og það sé útilokað að sigrast á þeim. Réði Spencer honum því að sögn frá því að fara þessa leið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins

Skilaði stolnum fornleifum vegna bölvunar og krabbameins
Pressan
Í gær

Martröð foreldra eftir að sjö ára sonur þeirra varð fyrir bíl – Nú hafa þeir verið handteknir

Martröð foreldra eftir að sjö ára sonur þeirra varð fyrir bíl – Nú hafa þeir verið handteknir
Pressan
Í gær

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lykilmaður í fremstu víglínu Rússa drepinn langt inni í Rússlandi

Lykilmaður í fremstu víglínu Rússa drepinn langt inni í Rússlandi