fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Pressan

Stefnumótið gekk vel þar til karlmaðurinn lagði próf fyrir hana – Stjórnsemi hans lauk ekki þar

Pressan
Mánudaginn 2. júní 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona nokkur taldi sig vera á frábæru fyrsta stefnumóti allt þar til karlmaðurinn lagði fyrir hana óvænt og afar óþægilegt „próf“.

Konan sem er 29 ára deildi reynslu sinni með Reddit samfélaginu og segir stefnumótið hafa byrjað með góðu samtali meðal annars um sameiginleg áhugamál, en hafa þróast yfir í  stjórnsöm og óþægileg samskipti. 

Sameiginleg vinkona kom þeim saman og hitti konan karlmanninn, sem er tveimur árum eldri, á kaffihúsi þar sem þau pöntuðu kaffi og bakkelsi.

„Stefnumótið byrjaði reyndar mjög vel. Við áttum margt sameiginlegt, frábært samtal og mér leið satt að segja vel.“ 

Þegar reikningurinn upp á 100 dali barst á borðið breyttist andrúmsloftið. Konan var tilbúin að deila reikningnum, en í staðinn rétti karlmaðurinn henni reikninginn og spurði: „Er í lagi að þú borgir fyrir þetta?“ Konan segir að hún hafi undrast þessa hegðun, en þar sem hún hafði ekki sérstakar áhyggjur af kostnaðinum, samþykkti hún að greiða fyrir máltíðina.

„Strax eftir að ég borgaði brosti hann breitt og sagði: „Til hamingju, þú stóðst prófið! Þú ert ekki gullgrafari!“ 

Karlmaðurinn viðurkenndi þá að hann hefði áður verið brenndur af fyrrverandi kærastu sem bjóst við að hann greiddi allt, allt frá kvöldverðum til ferðalaga. Fyrir vikið „prófi“ hann nú konur til að tryggja að þær séu ekki á eftir peningunum hans.

„Ég sagði honum að ég væri ekki fyrrverandi kærastan hans og að hann hefði engan rétt til að koma fram við mig eins og ég væri sek fyrr en sakleysi væri sannað,“ sagði konan. „Ég sagði líka að hann væri ekki einhver verðlaun sem ég þyrfti að standast próf fyrir.“

Eftir stefnumótið upplýsti hún sameiginlega vinkonu þeirra um aðstæðurnar og gerði það ljóst að hún vildi ekkert meira með karlmanninn hafa. Konan lokaði á frekari samskipti við manninn, en það var ekki endirinn á sögunni.

Áreitið hófst eftir stefnumótið 

Í uppfærslu á Reddit færslu sinni sagði hún að hann hefði haldið áfram að hafa samband við hana í gegnum nýja reikninga og skilaboðaforrit. Hann reyndi jafnvel að tengjast í gegnum LinkedIn.

„Í fyrstu voru þetta skilaboð frá honum sem voru á þann veg: „Ég vil bara útskýra“, síðan komu:„Þú ert ekki eins og aðrar stelpur, ég veit það.“ Svo breyttist þetta í heilar málsgreinar um hvernig ég er að „refsa“ honum fyrir að vernda sjálfan sig og hvernig hann er sá sem finnst hann svikinn,“ skrifaði hún.

Konan segist ekki hafa svarað neinum tilraunum karlmannsins til frekari samskipta en segir tilraunir hans hafa tekið sinn toll. „Það er komið á það stig að bara það að sjá tilkynningu með nafni hans gefur mér þessa skrýtnu kvíðatilfinningu,“ útskýrði hún.

Þegar hún hugsar til baka um stefnumótið áttaði hún sig á því að það snerist aldrei um ósvikna tengingu. „Hann fór ekki á stefnumótið til að kynnast mér, hann fór til að dæma mig, bera mig saman við sína fyrrverandi og sjá hvort ég „stæðivið væntingar“,“ skrifaði hún. „Og nú hagar hann sér eins og ég skuldi honum annað tækifæri vegna þess að ég „stóðst prófið“.“

Hún segir að aðalmálið sé hversu langt karlmaðurinn gekk í að reyna að stjórna henni. „Ég á góðan starfsferil, ég á eignir, ég er mjög fjárhagslega sjálfstæð. Ég vil alls ekki vera hraðbanki neins heldur. En ég myndi aldrei nota svona brögð til að „prófa“ persónuleika einhvers.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?