Ástæðan er tengd öryggi. Áhafnarmeðlimirnir eru í fremstu víglínu ef neyðartilfelli kemur upp og þeir leggja mat á hvort farþegarnir eru í standi til að takast á við hugsanlega rýmingu vélarinnar. Skórnir, sem þú ert í, geta gert þér auðveldara, eða erfiðara, fyrir við að komast leiðar þinnar ef neyðarástand kemur upp.
Ef rýma þarf flugvél, þá þarf það að gerast á örskömmum tíma og hver sekúnda telur. Rangur skófatnaður, til dæmis stór stígvél, háir hælar eða sleipir sandalar geta seinkað hreyfingum, valdið því að fólk dettur eða verið öðrum farþegum til óþæginda. Og það sem er enn verra, rangur skófatnaður getur skemmt öryggisútbúnað.
Það er sérstaklega í tilfellum þar sem þarf að nota neyðarrennur, sem eru uppblásnar, sem háir hælar eða oddhvassir hlutir undir sólunum geta gert gat á rennurnar. Þess vegna er oft tekið fram í öryggisleiðbeiningum að ekki megi vera í háhæluðum skóm ef rýma þarf vélina í skyndingu.