fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Pressan

Sérkennilegt morðmál eða hvað? – Skammbyssa, veðurbelgur og skæri

Pressan
Sunnudaginn 15. júní 2025 19:30

Alan Abrahamson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar rannsókn hófst á andláti Alan Abrahamson, 71 árs, í janúar 2018 var ekki annað að sjá en að um morð hefði verið að ræða. Það vakti auðvitað athygli að einhver skyldi vera myrtur í þessu friðsamlega 5.000 manna samfélagi sem staðarlögreglan segir vera öruggasta staðinn í Flórída. Mörgum íbúum brá mjög í brún og eins og gefur að skilja var fjölskyldu Abrahamson og vinum hans illa brugðið enda vissi enginn til að neinn hefði átt eitthvað sökótt við hann. Vinur hans sagði lögreglunni að Abrahamson hefði ekki átt neina óvini og að hann og eiginkonan hefðu verið „sálufélagar“.

Abrahamson stundaði golf af krafti, naut þess að ferðast og naut lífsins. Hann þótti sérstaklega brosmildur, hláturmildur og með gleðiglampa í augum sagði í minningargrein um hann í Palm Beach Post.

En það var eitthvað sem passaði ekki inn í myndina að mati lögreglunnar og fljótlega tók málið óvenjulega mynd á sig. CNN skýrir frá þessu.

Eiginkona Abrahamson sagði lögreglunni að hann hefði líklegast ætlað að hitta vin sinn á kaffihúsi morguninn sem hann lést. Þetta var nýleg morgunrútína hjá honum, að fara á kaffihús í nærliggjandi verslunarkjarna. Hún sagði að þessi janúarmorgunn hefði ekki verið nein undantekning á því.

Með því að nota leitarsögu Abrahamson á netinu með aðstoð Google gat lögreglan kortlagt hluta af lífi hans og önnur gögn komu einnig að góðum notum. Lögreglan birti þessar niðurstöður nýlega í skýrslu sinni um málið.

Fram kemur að Abrahamson hafi farið að heiman klukkan 5.42 að morgni 25. janúar. Hann var þá klæddur í stuttbuxur, bláa peysu og með derhúfu. Klukkan 5.53 hvarf hann sjónum eftirlitsmyndavéla. 37 mínútum síðar heyrist eitt skammbyssuskot á upptöku eftirlitsmyndavélar.

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Það var síðan hundur sem fann lík hans um klukkan 7. Hann lá á bakinu á akri og var gat á peysu hans og blóð þar í kring. Rannsóknarlögreglumenn komu á vettvang klukkan 9.30. þeir fundu síma Abrahamson og veski í vasa hans og skæri. En úrið hans fannst ekki, ekki heldur þeir nokkur hundruð dollarar sem hann var alltaf með á sér. Byssan, sem hann var skotinn með, fannst heldur ekki. Engin merki voru um átök.

Niðurstaða krufningar var að Abrahamson hafði verið skotinn einu skoti og hafði kúlan meðal annars farið í hjarta hans og lungu og brotið rifbein.

Morðrannsókn hófst

Eins og gefur að skilja komst lögreglan að þeirri niðurstöðu að Abrahamson hefði verið myrtur. Eftir vikulanga rannsókn hafði lögreglan ekki komist neitt áleiðis og var engu nær um atburðarrásina. Rætt var við eiginkonu hans, börn og vini. Svæðið var fínkembt í leit að sönnunargögnum en það skilaði litlu.

En þegar tölva Abrahamson var skoðuðu vaknaði áhugi lögreglumannanna. í tölvupósti hans voru skilaboð vegna pöntunar hans á veðurbelg tæplega mánuði áður en hann lést. Í framhaldi af þessu komst lögreglan að því að hann hafði keypt helíumkút tveimur dögum áður en hann lést. En það undarlega við þetta var að hann átti sér engin áhugamál sem kröfðust loftbelgsins og helíums.

Mynd:Wikimedia Commons

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það olli einnig ákveðnum heilabrotum að upptökur eftirlitsmyndavéla sýndu að Abrahamson hafði gengið framhjá hliðinu við bæinn 37 mínútum áður en byssuskotið heyrðist en hafði samt sem áður ekki farið langt. Lík hans fannst í um fjögurra mínútna göngufjarlægð frá hliðinu. Því var spurningin hvað hann var að gera í um hálfa klukkustund áður en lík hans fannst?

Niðurstaða fæst

Lögreglumenn brutu heilann um þetta undarlega mál. Ein af þeim undarlegu hugmyndum sem þeir fengu var hvort Abrahamson hefði getið bundið skammbyssu við loftbelg sem hefði flogið til himna með skammbyssuna eftir að hann hefði skotið sig?

Þetta þótti ansi langsótt en þó ekki útilokað. Það styrkti síðan lögreglumennina í trú sinni á þessa kenningu að þeir rákust á „svipað mál“ í þætti af CSI: Las Vegas frá 2003. Þar hafði ein persónan bundið skammbyssu við helíumfylltan loftbelg til að sviðsetja morð.

En enginn hafði séð veðurathugunar loftbelg yfir bænum þann 25. janúar.

Því næst köfuðu lögreglumenn ofan í leitarsögu Abrahamson hjá Google og skoðuðu hana 10 ár aftur í tímann. Þar sáu þeir að 2009 hafði hann slegið inn leitarorðin „sjálfsvíg“ og „hvernig á að fremja sjálfsvíg“. 2012 leitaði hann að „líftrygging vegna sjálfsvígs“. Í flestum líftryggingum er ákvæði vegna sjálfsvíga þar sem kemur fram að trygging fáist ekki greidd ef tryggingataki tekur eigið líf innan tveggja ára eftir að hann kaupir trygginguna.

Í mars 2016 leitaði Abrahamson að „órekjanlegar sjálfsvígsaðferðir“. Síðan fóru leitir hans á netinu að þrengjast. Í ágúst 2017 skrifaði hann: „Hversu marga rúmmetra af helíum þarf til að lyfta einu pundi?“ 23. janúar leitaði hann að helíumsölum nærri heimili sínu.

Eftir að hafa rakið „slóð“ Abrahamson með þessum hætti komst lögreglan að þeirri niðurstöður að hann hefði ekki verið myrtur. Hann hefði tekið eigið líf en hafi látið það líta út eins og hann hefði verið myrtur. Hann hafði sem sagt bundið skammbyssuna við loftbelginn, tekið í gikkinn og dáið en loftbelgurinn flaug á brott með skammbyssuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þessar matvörur veita þér orku á innan við hálftíma

Þessar matvörur veita þér orku á innan við hálftíma
Pressan
Í gær

Einfalda tækið sem bjargað hefur þúsundum mannslífa – Ertu með svona á þínu heimili og ertu viss um að það virki?

Einfalda tækið sem bjargað hefur þúsundum mannslífa – Ertu með svona á þínu heimili og ertu viss um að það virki?
Pressan
Í gær

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman

Ef þú setur þetta hjá lauknum þá getur hann enst mánuðum saman
Pressan
Fyrir 2 dögum

Arkitektinn hefndi sín grimmilega eftir að hann missti fjölskyldu sína í flugslysi

Arkitektinn hefndi sín grimmilega eftir að hann missti fjölskyldu sína í flugslysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hvítir flóttamenn frá Suður-Afríku sagðir svekktir eftir móttökurnar í Bandaríkjunum

Hvítir flóttamenn frá Suður-Afríku sagðir svekktir eftir móttökurnar í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íbúar Tehran forviða og skelfingu lostnir eftir árásir Ísrael í nótt – „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“

Íbúar Tehran forviða og skelfingu lostnir eftir árásir Ísrael í nótt – „Ég bara hélt að það myndi aldrei gerast“