fbpx
Mánudagur 02.júní 2025
Pressan

Sætindaþörf þín getur aukið líkurnar á að þú þróir þessa sjúkdóma með þér

Pressan
Laugardaginn 31. maí 2025 19:30

Quality Street-molarnir eiga sér langa sögu og hafa örugglega verið með vinsælasta sælgætinu um hátíðar á mörgum íslenskum heimilum gegnum tíðina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir elska sælgæti og borða það í töluverðu magni. Þess utan drekka margir sykraða drykki á borð við gosdrykki og safa. En þessi sætindaþörf getur aukið líkurnar á að fólk þrói hættulega sjúkdóma með sér.

Í rannsókn, sem var birt í Journal of Translational Medicine, var notast við upplýsingar um neysluvenjur 180.000 Breta. Gervigreind var notuð til að raða þeim í þrjá hópa.

Meðvituð um heilsuna. Kjósa ávexti og grænmeti frekar en dýraafurðir og sætar matvörur.

Borða allt. Líkar við flestar matartegundir, þar á meðal kjöt, fisk og sumt grænmeti og sælgæti og eftirrétti.

Sætindaþurfi. Kjósa sætan mat og sykraðar drykkjarvörur en hafa minni áhuga á hollari valmöguleikum á borð við ávexti og grænmeti.

Vísindamennirnir skoðuðu einnig niðurstöðu blóðrannsókna á fólkinu en í þeim var magn tæplega 3.000 prótína og 168 umbrotsefna mælt til að sjá breytingar á magni þeirra.

Prótín eru vinnuhestar líkamans og sjá um allt frá baráttunni við sýkingar til vöðvasamdráttar og hugsunar.

Umbrotsefnin eru litlar sameindir sem myndast við meltingar og önnur efnaferli í líkamanum. Þau geta sagt okkur margt um hvernig líkaminn starfa.

Með því að bera saman prótínin og umbrotsefnin gátu vísindamennirnir fengið skýra mynd af líffræðilegum mun á milli hópanna.

Nophar Geifman, aðalhöfundur rannsóknarinnar og prófessor í heilbrigðisfræði við University of Surrey, sagði í samtali við Science Daily að svo virðist sem bein tengsl séu á milli matar og heilsufars. „Ef uppáhaldsmaturinn þinn er kökur, sælgæti og sykraðar drykkjarvörur, benda niðurstöður rannsóknarinnar til að það geti haft neikvæð áhrif á heilsufarið. Við komumst að því að það eru 31% meiri líkur á að fólk, sem er gefið fyrir sætindi, glími við þunglyndi,“ sagði hann og bætti við að einnig hafi komið í ljós að þessi sami hópur hafi hærra hlutfall sykursjúkra en hinir hóparnir. Það sama á við um hjarta- og æðasjúkdóma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Sonur Sterling í Arsenal
Pressan
Í gær

Fimm „hollar“ morgunrútínur sem þú getur lagt á hilluna – Þrjár sem þú ættir að taka upp í staðinn

Fimm „hollar“ morgunrútínur sem þú getur lagt á hilluna – Þrjár sem þú ættir að taka upp í staðinn
Pressan
Í gær

Færð þú uppþembu eftir að hafa borðað? Læknir segir þetta bestu leiðina til að sleppa við það

Færð þú uppþembu eftir að hafa borðað? Læknir segir þetta bestu leiðina til að sleppa við það
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona mörg skref þarf að ganga daglega til að minnka líkurnar á að fá krabbamein

Svona mörg skref þarf að ganga daglega til að minnka líkurnar á að fá krabbamein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Musk segir skilið við DOGE í skugga þungra ásakana – Mætti með glóðarauga í Hvíta húsið

Musk segir skilið við DOGE í skugga þungra ásakana – Mætti með glóðarauga í Hvíta húsið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“

Matarbloggari fær á baukinn fyrir uppátæki sitt – „Nei, nú fórstu yfir strikið“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón

Ráðherra neyddist til að segja af sér eftir að hafa sagt að hann hafi aldrei keypt hrísgrjón