fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Pressan

Vildi fá gluggasætið í 11 klukkustunda flugferð – Svar konunnar er frábært

Pressan
Sunnudaginn 18. maí 2025 21:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þú hefur bókað gluggasæti, með margra mánaða fyrirvara, þegar 11 klukkustunda flugferð er fram undan, þá lætur þú væntanlega ekkert komast á milli þín og þess að geta sofið vel í þessu góða sæti. Ekki einu sinni mann með mikið sjálfsálit.

Kona ein skýrði nýlega frá upplifun sinni í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Hún sagðist hafa verið sest í gluggasætið sitt þegar hún var á leið frá New York til Egyptalands. Hún hafði bókað gluggasætið til að geta sofið í þessari löngu flugferð.

Síðan kom maður til hennar og spurði hvort hún vildi skipta um sæti svo hann gæti setið við hliðina á konunni sinni. Hún skrifaði að hún hefði verið tilbúin til að íhuga það ef sætið hans hefði verið jafn gott og hennar en það var það ekki.

Maðurinn reyndi að rökræða þetta við hana og sagði meðal annars: „Útsýnið er hvort sem er lélegt, það verður myrkur alla leiðina.“

Konan svaraði honum þá að hún hefði í hyggju að halla sér upp að glugganum til að eiga auðveldara með að sofa og hafnaði ósk mannsins.

Hann gafst ekki upp og spurði: „Ef þú ættir mann, vildir þú þá ekki sitja við hlið hans?“

Þá kom konan með frábært svar sem maðurinn átti ekkert svar við: „Ég á mann og ég hefði bókað sæti fyrir okkur hlið við hlið strax í upphafi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sendi skilaboð til Trumps áður en hann var tekinn af lífi

Sendi skilaboð til Trumps áður en hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hraðamyndavél náði mynd af óvenjulegu broti

Hraðamyndavél náði mynd af óvenjulegu broti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór út að skemmta sér – Vaknaði næsta dag nakinn, aleinn og búið að stela peningunum hans

Fór út að skemmta sér – Vaknaði næsta dag nakinn, aleinn og búið að stela peningunum hans