fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Sérfræðingar segja þessar fjórar veirur geta valdið næsta heimsfaraldri

Pressan
Fimmtudaginn 6. mars 2025 04:10

Marburgveira. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr heimsfaraldur lúrir einhvers staðar en hvort hann skellur á á morgun, í næsta mánuði, næsta áratug eða eftir nokkra áratugi, það veit enginn.

Vísindamenn geta ekki sagt nákvæmlega til um hvenær eða hvernig næsti heimsfaraldur hefst en þeir segja ekki ólíklegt að það gerist fyrr en síðar.

Á undanförnum vikum hefur dularfullur veirusjúkdómur brotist út í vesturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó og hafa að minnsta kosti 60 manns látist af hans völdum. Áður höfðu Marburgveira og apabóla herjað í austanverðri Afríku.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO segir að þessi dularfulli sjúkdómur sé hvorki ebóla, Marburgveira né apabóla og að sjúklingarnir sýni einkenni „blæðandi hitasóttar“.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu the British Medical Journal í nóvember 2023, kom fram að fjórar veirur þyki koma sterklega til greina sem uppspretta næsta heimsfaraldurs.

Þetta eru ebóla og Marburgveiran, SARS, Nipahveiran og Machupoveiran. Faröldrum af völdum þessara veira fjölgaði mjög mikið frá 1963 til 2019.

Paul Hunter, hjá University of East Anglia, ræddi við blaðamann The Sun nýlega og skýrði nánar frá fyrrgreindum veirum og hvaðan þær geta borist.

Ebóla og Marburgveiran eru mjög smitandi. Þær koma úr leðurblökum og er dánartíðnin af þeirra völdum há. Báðir sjúkdómarnir hafa blossað upp öðru hvoru í Afríku á síðustu árum og geta að sögn Hunter breiðst út.

Þessar veirur smitast yfirleitt aðeins við frekar nána snertingu og því er ólíklegt að úr verði heimsfaraldur á næstunni. Til að svo illa fari þurfa veirurnar að breyta smitleiðum sínum mjög mikið að sögn Hunter.

SARS er öndunarfærasjúkdómur sem kórónuveira veldur, sú sama og veldur COVID-19. Hunter sagði að talið sé að SARS komi frá leðurblökum og sé líklegasti sjúkdómurinn til að valda næsta heimsfaraldri. Ástæðan er að hann er svo bráðsmitandi.

Nipah er veira sem berst frá leðurblökum eða búfénaði og gæti vel valdið næsta heimsfaraldri. Veiran ræðst á heilann sem bólgnar upp. Dánartíðnin er 75%. Af þeim sem lifa smit af, glíma um 20% við langtíma áhrif á taugakerfið, þar á meðal persónuleikabreytingar eða flog.

Machupo uppgötvaðist fyrst í Bólivíu 1959. Sjúkdómurinn kemur frá nagdýrum, nánar tiltekið frá músategund sem býr í Bólivíu. Hunter sagði að þetta gæti orðið heimsfaraldur ef sjúkdómurinn breiðist út meðal nagdýra á heimsvísu. Sjúkdómseinkennin eru svipuð og við ebólusmit, blæðingar, hár hiti, verkir og skjótur dauðdagi. WHO segir að fjórðungur til þriðjungur smitaðra látist af völdum sjúkdómsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf