fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Pressan

Óhugnanlegt mál skekur Þýskaland – White Tiger í haldi

Pressan
Þriðjudaginn 24. júní 2025 03:16

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvítugur þýsk-íranskur maður er í haldi þýsku lögreglunnar grunaður um viðbjóðsleg níðingsverk. Undir notendanafninu White Tiger herjaði hann á viðkvæm börn og ungmenni á Internetinu og fékk sum þeirra til að valda sjálfum sér skaða og 13 ára bandarískan dreng fékk hann til að taka eigið líf í beinni útsendingu.

Lögreglan veit um átta fórnarlömb hans að sögn Bild. White Tiger, sem er frá Hamborg, var mjög virkur í nethópi sem kallaði sig 764. Nú þurfa hann og fleiri meðlimir hópsins að svara til saka fyrir níðingsverk hans.

Lögreglan segir að White Tiger hafi leitað að fórnarlömbum sínum í sjálfsvígsspjallhópum á Internetinu. Hann komst í samband við börn og ungmenni, sem voru í erfiðri stöðu, og fékk þau til að gera skelfilega hluti við sjálfa sig.

Í einum spjallhópanna komst hann í samband við 13 ára bandarískan pilt sem hafði í hyggju að taka eigið líf. Hann tók síðan eigið líf í beinni útsendingu á Instagram þann 17. Janúar 2022. White Tiger er að mati lögreglunnar maðurinn sem í raun drap piltinn. Hann er einnig sakaður um að hafa reynt að myrða 15 ára kanadíska stúlku.

White Tiger er í haldi lögreglunnar í Hamborg sem segist hafa hafið rannsókn á málum hans eftir að ábending barst frá bandarísku alríkislögreglunni FBI 2023.

Maðurinn er sakaður um rúmlega 100 mismunandi afbrot. 39 þeirra snúast um hættulegar líkamsmeiðingar, 20 mál er varða kynferðislega misnotkun og 42 tilfelli vörslu barnakláms. Hann var með rúmlega 13.000 skrár af barnaklámi.

Hópurinn 764 var stofnaður 2021 af Bradley Cadenhead, sem var 15 ára á þeim tíma. Nafnið er dregið af póstnúmerinu heima hjá honum.

Cadenhead afplánar nú 80 ára dóm í Bandaríkjunum.

Hópurinn beinir spjótum sínum að börnum og ungmennum og beitir þau þrýstingi til að veita sjálfum sér áverka, misnota dýr og í sumum tilfellum til að taka eigið líf.

FBI hefur skilgreint 764 sem hryðjuverkasamtök og réttarhöld standa yfir í Bandaríkjunum og Grikklandi gegn meðlimum hópsins.

Hópurinn er sagður ein alvarlegasta ógnin við ung börn á Internetinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandarískir þingmenn forviða – Braut Trump stjórnarskrá Bandaríkjanna með árásunum á Íran?

Bandarískir þingmenn forviða – Braut Trump stjórnarskrá Bandaríkjanna með árásunum á Íran?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íran segir að árásir Bandaríkjanna muni hafa varanlegar afleiðingar

Íran segir að árásir Bandaríkjanna muni hafa varanlegar afleiðingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja

Líf eftir dauðann – Svona er að deyja
Pressan
Fyrir 2 dögum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum

12 ára stúlka kallar eftir réttlæti vegna morðsins á föður sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er besti veitingastaður í heimi

Þetta er besti veitingastaður í heimi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Maður sem var að forðast reiða eiginkonu braust inn á mannlaust heimili til að skella sér í bað og elda sér mat

Maður sem var að forðast reiða eiginkonu braust inn á mannlaust heimili til að skella sér í bað og elda sér mat