fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 06:30

Kínverskir hermenn en Kínverjar eru ágengir við Taívan þessi misserin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan. Þetta sagði hann bandalagsríkjum Bandaríkjanna við Kyrrahaf og Indlandshaf á Shangri-La Dialogue öryggisráðstefnunni sem fór fram um helgina í Singapúr.

Hann sagði að Kínverjar æfi sig nánast daglega í hvernig þeir eigi að ná Taívan á sitt vald. Kínverjar hafa haldið fjölda æfinga að undanförnu þar sem þeir æfa sig í að setja eyríkið í herkví.

Kínverska kommúnistastjórnin gerir kröfu til yfirráða yfir Taívan og segir eyríkið vera órjúfanlega hluta af Kína. Þessu eru Taívanar ósammála enda hafa þeir engan áhuga á að lenda undir ógnarvaldi kommúnistastjórnarinnar, vilja einfaldlega búa við sitt lýðræði áfram.

The Independent segir að Hegseth hafi sagt að Kínverjar séu að undirbúa sig fyrir alvöruna og það þýði ekkert að reyna að leyna stöðu mála, það stafi raunveruleg ógn af Kínverjum og að stutt geti verið í að þeir ráðist á Taívan.

Bandaríkin hafa heitið að verja fullveldi Taívan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð

Myrti frænku sína – Höfðar mál á hendur sjónvarpsstöð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blóðugur og berfættur Ítali náði að flýja eftir 17 daga pyntingar – Tengist rafmynt

Blóðugur og berfættur Ítali náði að flýja eftir 17 daga pyntingar – Tengist rafmynt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Pútín sagður vera að undirbúa hefnd – Yfirmaður þýska heraflans varar NATO við

Pútín sagður vera að undirbúa hefnd – Yfirmaður þýska heraflans varar NATO við