Hópurinn heyrir undir rússnesku leyniþjónustuna GRU og er mikilvægur hluti af ríkisreknum nethernaði Rússa gegn vestrænum fyrirtækjum og stofnunum að því er segir í skýrslunni.
Í skýrslunni segir að hópurinn hafi allt frá upphafi stríðsins í Úkraínu reynt að brjótast inn í tölvukerfi fjölda vestrænna fyrirtækja og opinberra stofnana. Ekki kemur fram hvort hópnum hafi tekist að brjótast inn í tölvukerfin.