fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Pressan

Pútín sagður vera að undirbúa hefnd – Yfirmaður þýska heraflans varar NATO við

Pressan
Mánudaginn 2. júní 2025 15:30

Vladimir Pútín

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladimír Pútín Rússlandsforseti er nú sagður liggja undir feldi vegna stórfelldrar drónaárásar sem Úkraínumenn gerðu um helgina. Að minnsta kosti 40 rússneskar sprengjuflugvélar voru skemmdar eða eyðilagðar í þaulskipulagðri árás Úkraínumanna.

Þetta er mikið högg fyrir rússneska herinn og er tjónið talið nema tugum, ef ekki hundruð, milljörðum króna.

En Pútín er ekki sagður ætla að láta þetta stoppa sig og er búist við því að rússneski herinn muni hefna fyrir árásina með grimmilegum hætti.

Þá er talað um að æðstu ráðamenn innan FSB, stærstu öryggisstofnun Rússlands, séu taugaóstyrkir vegna málsins og þeir þurfi að svara fyrir það hvernig Úkraínumönnum tókst að smygla nokkur hundruð drónum yfir til Rússlands sem notaðir voru við aðgerðina.

Carsten Breuer, yfirmaður þýska heraflans, óttast að Rússar séu að búa sig undir árás á aðildarríki NATO. Í viðtali við BBC bendir hann á að Rússar hafi sankað að sér skriðdrekum og skotfærum á undanförnum misserum. Þetta gefi til kynna að Rússar séu að búa sig undir víðtækari aðgerðir en hafa átt sér stað í Úkraínu á síðustu árum.

Carsten segir að hugsanlega muni Rússar ráðast að Eystrasaltsríkjunum á næstu fjórum árum. Aðildarríki NATO þurfi að búa sig undir þessa sviðsmynd og ógnin nú sé sú mesta sem hann hefur séð í áratugi. Bendir hann á að Rússar framleiði um 1.500 skriðdreka á ári.

„Þessir skriðdrekar fara ekki allir til Úkraínu og Rússar virðast vera að safna birgðum,“ segir hann og bætir við að Rússar séu einnig að framleiða skotfæri til að eiga á lager. Segir Carsten að greinendur reikni með að Rússar verði tilbúnir fyrir innrás ekki seinna en árið 2029.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Nýr formaður Heimdallar
Pressan
Í gær

Þýska lögreglan fer fram á nýja leit að líki Madeleine McCann

Þýska lögreglan fer fram á nýja leit að líki Madeleine McCann
Pressan
Í gær

Ferðamenn áttu fótum sínum fjör að launa þegar eldgos hófst í Etnu – Sjáðu myndbandið

Ferðamenn áttu fótum sínum fjör að launa þegar eldgos hófst í Etnu – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta máttu aldrei segja þegar kynlíf er stundað

Þetta máttu aldrei segja þegar kynlíf er stundað