Ríkasti maður heims, Elon Musk, hefur undanfarið ár starfað náið með Bandaríkjaforseta. En nú hafa orðið kaflaskil. Musk hefur undanfarna daga skotið nokkuð föstum skotum á fjárlagafrumvarp forsetans, en hann telur að forsetinn sé að ganga of langt í að auka útgjöld og skuldir hins opinbera. Orðið á götunni er að vinslit hafi orðið með þeim Musk og Trump, þó þeir þræti báðir fyrir það.
Fyrrum lögmaður Trump, Michael Cohen, segist hafa spáð því fyrir löngu síðan að þessi vinskapur forsetan og ríkasta manns heims yrði skammlífur. Hann spáir því enn fremur að Trump eigi eftir að gera Musk að skotmarki.
Cohen ræddi við MSNBC í gær þar sem hann sagði:
„Trump mun að næst beina spjótum sínum að auðæfum Musk, því það fer fyrir brjóstið á forsetanum að Musk sé ríkasti maður heims.“
Cohen segir augljóst að forsetinn hafi verið að nota Musk. Nú hafi forsetinn þó séð að Musk hafi notfært sér stöðu sína hjá hinu opinbera, og sem ráðgjafi forseta, sjálfum sér til framdráttar.
„Já hann notaði hann til að fá aðgang að peningunum hans. Nú mun hann komast að því hvernig Elon, í gegnum fyrirtæki sín, misnotaði Bandaríkin“
Trump muni líklega snúa vörn í sókn. Musk fór fyrir hagræðingadeild ríkisstjórnarinnar sem fékk nafnið DOGE. Nú muni Trump nota þessa sömu deild til að ráðast gegn fyrrum forsvarsmanni hennar. Deildinni var ætlað að auka skilvirkni hjá honu opinbera og koma upp um svik, óráðsíu og misnotkun. Cohen spáir því að DOGE verði nú falið að skoða hvernig skattpeningar hafa verið að renna í vasa Musk.
„Þannig þénaði hann milljarðana sína. Hvers vegna ætti bandaríska ríkið að niðurgreiða rafbíla? Borgið ykkar eigin bíla ef þið viljið kaupa þá,“ segir Cohen sem spáir því að þessum niðurgreiðslum verði hætt og eins verði fjölmargir samningar sem fyrirtæki Musk hafa gert við hið opinbera tekin til endurskoðunar.
Rétt er að geta þess að Cohen hefur játað á sig fjölda glæpa, meðal annars fyrir að hafa brotið lög um fjármögnun kosningaherferða, fyrir að svíkja undan skatti og fyrir að hafa logið í þingsal. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi, en afplánaði tvö þeirra í stofufangelsi. Brot hans tengdust meintum mútugreiðslum til klámstjörnunnar Stormy Daniels sem segist hafa átt í kynferðislegu sambandi við Donald Trump á árum áður.