Þetta er meðal þess sem fórnarlömb mannræningja, sem vilja komast yfir rafmyntir viðkomandi, hafa þurft að þola í Frakklandi og Bandaríkjunum.
Rafmyntamilljónamæringum og fjölskyldumeðlimum þeirra og ættingjum hefur verið rænt á götum úti í Frakklandi og Bandaríkjunum á síðustu misserum af ofbeldismönnum sem vilja komast yfir rafmyntir þeirra.
Á föstudaginn slapp ítalskur ferðamaður úr haldi mannræningja í New York eftir að hafa verið í haldi þeirra í 17 daga. Á þeim tima var hann pyntaður og hótað að hann yrði drepinn ef hann upplýsti ekki aðgangsorðið að rafmyntareikningi sínum.
Mörg mannrán, tengd rafmyntum, áttu sér stað í Frakklandi í maí. Franska lögreglan handtók í síðustu viku rúmlega 20 manns sem tengjast þessari „bylgju“ „rafmyntamannrána“.
Payam Samarghandi, lögmaður, hefur sérhæft sig í málum tengdum rafmynt. Hann segir að þessi bylgja mannrána í Frakklandi þurfi ekki að koma á óvart. „Millifærslur á rafmynt eru óafturkræfar og að vissu leyti er hægt að geyma rafmynt nafnlaust,“ sagði hann og benti á að þetta geri að verkum að nánast útilokað sé að rekja hver sendi og taki við rafmyntinni.
En eins og áður sagði þá er þetta ekki bara sérfranskt vandamál því mál af þessu tagi hafa komið upp í Bandaríkjunum. Fyrrgreindur Ítali átti líklega ekki von á að honum yrði rænt sama dag og hann kom til Bandaríkjanna og að þeirri þrautagöngu lyki ekki fyrr en eftir 17 daga.
Hann var lokkaður að húsi í Soho með loforði um að hann gæti fengi rafmynt aftur sem hann hafði áður, eftir hótanir, verið neyddur til að senda til hins grunaða í málinu en sá gengur undir viðurnefninu „Rafmyntakóngur Kentucky“.
Þegar Ítalinn kom inn í húsið var hann bundinn með hendur fyrir aftan bak og byrjað var að pynta hann til að fá hann til að skýra frá aðgangsorðinu að rafmyntareikningi hans.
Honum tókst loks að flýja á föstudaginn, berfættur og blóðugur. Samdægurs var rafmyntakaupmaðurinn John Woelts handtekinn vegna málsins. Tveir til viðbótar voru síðan handteknir.
Saksóknari segir að lögreglan hafi fundið blóð viða í húsinu og bendi það til að Ítalinn hafi verið pyntaður á mörgum stöðum í því.