fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Pressan

Þetta máttu aldrei segja þegar kynlíf er stundað

Pressan
Sunnudaginn 1. júní 2025 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynlíf getur verið töfrum líkast, villt, fyndið, vandræðalegt og eiginlega allt þarna á milli. En ekkert er betur fallið til að drepa stemmninguna en að segja vitlausan hlut á röngum tímapunkti.

Það er rétt að hafa í huga að það eru ekki bara karlar sem klúðra þessu en kannski eru meiri líkur á að þeir geri það. En fólk hefur sérstakan hæfileika til að segja það, sem ekki á að segja, þegar líkaminn er kominn vel af stað.

Þetta má aldrei segja þegar verið er að stunda kynlíf, nema auðvitað þú stefnir á að láta sparka þér úr rúminu.

Ertu búin að fá það? – sagt með meiri vonartón en af sannfæringu. Ef þú neyðist til að spyrja, þá veistu svarið. Það bætir stöðuna ekki ef þú varpar þessari spurningu fram 20 sekúndum eftir að fjörið hófst.

Mín fyrrverandi elskaði þetta – Nei og aftur nei. Með þessu dregur þú andlega fyrrum unnustu þína með upp í rúm. Þetta er eins og að pissa á kerti og kveikja á því aftur.

Hvað heitir þú nú aftur? – Ef þú ert ekki viss um nafnið, þá skaltu finna leið til að forðast að þurfa að nota það. Notaðu gælunafn. Notaðu þögn. Notaðu neyðarútgang. Þú mátt bara alls ekki spyrja um nafnið.

Eigum við að kveikja ljósið? Ég vil sjá hvernig þú lítur út – Þetta er kannski hugsað sem forvitni en lítur frekar út eins og einhverskonar rannsókn. Ekki mjög kynæsandi nema þú viljir komast í augnsamband þar sem hún hrekur þig út úr íbúðinni með augunum einum saman.

Ég hef aldrei verið góður í þessu – Sjálfstraust er æsandi. Efi gerir það gagnstæða.

Er eðlilegt að hann sé ekki alveg beinn? – Þú hugsar kannski upphátt en þetta er ekki rétti tíminn til að vera með líffræðikennslu. Ef þú hefur áhyggjur af jafnaldra þínum, þá skaltu frekar spyrja Google eða lækninn. Ekki konuna sem er með þér í bólinu.

Má ég taka mynd? – Nei, nei, nei. Þetta er ekki Snapchat. Þetta er ekki OnlyFans prufa. Ef þú spyrð, þá færðu næstum örugglega nei og jafnvel olnboga í augað í kaupbæti.

Ertu viss um að þú sért ekki ólétt? – Þetta er setning sem getur verið bæði sögð í fúlustu alvöru eða gríni. En hvorugt virkar þegar verið er að stunda kynlíf. Ekki einu sinni þótt þú notir „fyndni gaurinn“ taktína.

Þú minnir mig á mömmu – Það liggur nú í augum uppi að þetta segir maður ekki.

Eigum við ekki bara að vera vinir? – Kynlíf er ekki rétti tíminn til að taka stórar tilfinningalegar ákvarðanir. Bíddu þar til þú ert kominn í buxurnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fyrst var það TACO – Nú er það FAFO og Trump er öskureiður

Fyrst var það TACO – Nú er það FAFO og Trump er öskureiður
Pressan
Í gær

TACO er nýja viðurnefni Trump og honum er ekki skemmt – Er sannleikskorn í kenningunni?

TACO er nýja viðurnefni Trump og honum er ekki skemmt – Er sannleikskorn í kenningunni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi hlutur í svefnherberginu gerir þig þreyttan – Skiptir engu þótt þú sofir nóg

Þessi hlutur í svefnherberginu gerir þig þreyttan – Skiptir engu þótt þú sofir nóg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hörmung í háloftunum – Farþegi reyndi að draga flugfreyju með sér

Hörmung í háloftunum – Farþegi reyndi að draga flugfreyju með sér