fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Pressan

Þessi hlutur í svefnherberginu gerir þig þreyttan – Skiptir engu þótt þú sofir nóg

Pressan
Laugardaginn 31. maí 2025 17:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú ferð snemma í rúmið, forðast að horfa á sjónvarp og nota símann í svolitla stund fyrir háttatímann og sefur góða átta tíma. En samt sem áður vaknar þú þreyttur, þungur á þér og illa upplagður. Kannski hugsar þú með þér að þetta sé bara vetrarþreyta eða stress. En ástæðan getur verið allt önnur – Svolítið sem er kannski í svefnherberginu þínu.

Þetta er náttborðsljósið þitt. Já, þú last rétt, það er náttborðsljósið, sem ætti eiginlega að hjálpa þér við að róast og sofna, sem gæti gert að verkum að þér finnst þú ekki úthvíldur, meira að segja ef þú sefur klukkustundum saman.

Þetta snýst í raun ekki um lampann sjálfan, heldur ljósið frá honum. Mörg náttborðsljós, sérstaklega LED, senda frá sér blátt eða kalt hvítt ljós sem truflar náttúrulega melatónínframleiðslu líkamans. Melatónín er svefnhormónið sem gerir þig syfjaðan og hjálpar þér að sofa djúpum svefni.

Þegar augun sjá blátt ljós, meira að segja í litlu magni, metur heilinn það sem svo að það sé enn dagur. Það getur haft þær afleiðingar að þú sofnar kannski en svefninn verður léttari og þú vaknar oft með skömmu millibili en kannski án þess að þú fattir það.

Svona er hægt að sjá hvort um vandamál er að ræða:

–          Lampinn þinn lýsir mjög skært, næstum eins og „skrifstofulampi“.

–          Þér finnst þú meira vakandi þegar þú lest í rúminu.

–          Þú átt erfitt með að vakna ferskur, meira að segja eftir 7-8 klukkustunda svefn.

Ef þú kannast við eitthvert af fyrrgreindum atriðum, þá er kominn tími til að skipta um peru, ekki rúm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum

Þetta eru merki um að þú sért orðinn fullorðinn – Gegn vilja þínum
Pressan
Í gær

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?

7 manna fjölskylda var myrt í svefni – Var sökinni komið á elsta soninn eða var hann sekur?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn vara við – „Uppvakningaeldfjall“ sýnir lífsmerki eftir 250.000 ára svefn

Vísindamenn vara við – „Uppvakningaeldfjall“ sýnir lífsmerki eftir 250.000 ára svefn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona mörg skref þarf að ganga daglega til að minnka líkurnar á að fá krabbamein

Svona mörg skref þarf að ganga daglega til að minnka líkurnar á að fá krabbamein
Pressan
Fyrir 3 dögum

Suðurkóresk yfirvöld neita því að rætt hafi verið um brottflutning bandarísks herliðs

Suðurkóresk yfirvöld neita því að rætt hafi verið um brottflutning bandarísks herliðs
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússnesk móðir fékk leigumorðingja til að myrða 12 ára dóttur sína – Ástæðan er hrollvekjandi

Rússnesk móðir fékk leigumorðingja til að myrða 12 ára dóttur sína – Ástæðan er hrollvekjandi