24 ára karlmaður á yfir sér ákæru eftir að hafa dregið flugfreyju eftir gangi flugvélar á meðan á flugi stóð. Julius Jordan Priester, karlmaður frá Kansas í Bandaríkjunum var handtekinn og ákærður vegna atviksins, en flugvélin flaug frá Bradley alþjóðaflugvellinum í Windsor Locks, Connecticut, samkvæmt yfirlýsingu frá dómsmálaráðuneytinu.
Þann 27. maí var Priester um borð í flugi American Airlines á leið til Chicago. Þegar liðnar voru 30 mínútur af fluginu stóð hann upp, byrjaði að klæða sig úr skyrtunni og hljóp aftast í flugvélina og öskraði: „Hjálpið mér.“
Saksóknarar segja að Priester hafi síðan gripið flugfreyju, sem sat í sæti sínu, og öskrað: „Þú kemur með mér,“ og þvingað hana í gólfið. Hann er síðan sagður hafa reynt að draga flugfreyjuna upp vélarganginn.
Nokkrir farþegar gripu inn í og gátu komið Priester aftur í sæti sitt, segir í yfirlýsingunni. Yfirvöld segja að hann hafi haldið áfram að haga sér með árásargjörnum hætti og gefið frá sér yfirlýsingar.
Flugstjórinn lýsti yfir neyðarástandi og var vélinni snúið aftur til Bradley flugvallar. Eftir að flugvélin lenti var Priester fjarlægður af lögreglunni í Connecticut og fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús á staðnum til skoðunar.
Priester sat í gæsluvarðhaldi þar til yfirheyrslur fóru fram í gær. Hegðun sem þessi, afskipti af flugliða og flugþjónum, varða að hámarki 20 ára fangelsi.
American Airlines sagði að það „þoli ekki ofbeldi,“ í yfirlýsingu til CBS News. „Við þökkum liðsmönnum okkar fyrir fagmennskuna og viðskiptavinum okkar fyrir aðstoðina,“ bætti flugfélagið við.
Mál Priester er til rannsóknar hjá FBI og lögreglunni í Connecticut.