fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Pressan

Leyniskjöl frá CIA afhjúpa að þriðja heimsstyrjöldin hafi nærri hafist af völdum fljúgandi furðuhluta

Pressan
Sunnudaginn 18. maí 2025 21:30

Ætluðu geimverur að hefja þriðju heimsstyrjöldina?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gömul leyniskjöl frá bandarísku leyniþjónustunni CIA sýna að fyrir nokkrum áratugum síðan voru við óhugnanlega nærri því að upplifa þriðju  heimsstyrjöldina. Það var þó ekki vegna misviturra stjórnmálamanna, heldur vegna utanjarðaráhrifa.

Í skjölunum kemur fram að 1982 hafi fimm fljúgandi furðuhlutir sést yfir sovéskri herstöð í Úkraínu og að þeir hafi reynt að skjóta sovéskum kjarnorkuvopnum af stað.

Boris Solokov, ofursti í sovéska hernum, sagði að hann og tíu aðrir hermenn hafi séð atburðarás sem hafi einna helst líkst einhverju úr vísindaskáldsögu.

Hann sagði að þeir hafi séð allt að fimm fljúgandi furðuhluti svífa yfir Usovioin herstöðinni í Úkraínu. Skyndilega hafi háleynilegir aðgangskóðar fyrir kjarnorkuvopn herstöðvarinnar birst á skjám í stjórnrýminu og hafi það sýnt að verið var að undirbúa að skjóta kjarnorkuvopnum á loft.

Í skýrslunni er haft eftir Solokov að tugir hermanna hafi orðið vitni að þessu.

En þar með er sagan ekki öll sögð því einnig kemur fram að síðan hafi orðið öflug sprenging þar sem hvítt ljóst hafi myndast og hafi breytt hermönnum í „steinstyttur“. Þeir sem voru í skóli sluppu ómeiddir.

Steingerðir líkamarnir voru síðan fluttir á rannsóknarstofu þar sem í ljós kom að efnasamsetning þeirra var hin sama og í kalksteini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hann trúði virkilega að það væri engin leið út ef þessar myndir yrðu birtar”

„Hann trúði virkilega að það væri engin leið út ef þessar myndir yrðu birtar”
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með

Dældi skilaboðum yfir konu og hvatti hana til að fyrirfara sér svo hann gæti fylgst með
Pressan
Fyrir 3 dögum

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017
Pressan
Fyrir 3 dögum

Karlar líklegri en konur til að deyja úr brostnu hjarta

Karlar líklegri en konur til að deyja úr brostnu hjarta