fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Pressan

Trump herjar á námslánaþega – Milljónir Bandaríkjamanna fá reikning

Pressan
Sunnudaginn 11. maí 2025 07:30

Rússar sitja uppi með gamla dollaraseðla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í fyrsta sinn í fimm ár hafa bandarísk yfirvöld hafist handa við að innheimta námslán. Menntamálaráðuneytið segir að innheimtan muni ná til um fimm milljóna manna sem eiga nú þegar í fjárhagserfiðleikum, eru gjaldþrota eða hafa ekki getað greitt allar afborganirnar á eindaga.

Linda McMahon, menntamálaráðherra, virðist ekki hafa mikla samúð með lántakendunum miðað við ummæli hennar: „Að hefjast aftur handa við innheimtuna, verndar skattgreiðendur gegn því að þurfa að greiða kostnað við námslán frá alríkisstjórninni sem lántakendur hafa sjálfir valið að taka.“

Með öðrum orðum: Þú skuldar, þú borgar.

Fyrstu lántakendurnir hafa nú þegar fengið tölvupóst frá ráðuneytinu þar sem þeir eru hvattir til að setja sig í samband við það svo hægt sé að gera greiðsluáætlun. Ef lántakendur bregðast ekki við, mun ríkið gera kröfu í laun lántakendanna í sumar.

Hjá þeim sem eru sérstaklega kærulausir, verða innheimtufyrirtæki send þeim til höfuðs.

Samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu skulda 42,7 milljónir Bandaríkjamanna námslán að jafnvirði sem svarar til um 222.000 milljarða króna. 38% standa í skilum en lán rúmlega 5 milljóna lántakenda eru í vanskilum. Sumir hafa ekki greitt neitt í sjö ár.

Fjórar milljónir lántakenda eru á barmi þess að lenda í vanskilum og yfirvöld telja að allt að 10 milljónir geti verið komnar í vanskil innan ekki svo langs tíma.

Í versta falli, fyrir lántakendurna, getur ríkið tekið lífeyrisgreiðslur frá hinu opinbera upp í skuldina. Milljónir Bandaríkjamanna eru háðir þessum lífeyrisgreiðslum og standa því frammi fyrir sannkallaðri tilvistarógn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu